Þjónusta sveitarfélaga

Hveragerðisbær (Hveragerði)

Hveragerðisbær

Hveragerði

Breiðumörk 20 | 810 Hveragerði |483 4000 |[email protected] | Vefsíða Hveragerðisbæjar           

Fræðslu- og velferðarsvið Hveragerðis sinnir þjónustu við fatlað fólk. Þar starfar þverfaglegt fagteymi þroskaþjálfa, félagsráðgjafa, hegðunarráðgjafa og sálfræðings. Nánari upplýsingar má fá á vefsíðu Hveragerðisbæjar.

Bergrisinn bs.

Sveitarfélögin Hveragerðisbær, Sveitarfélagið Ölfus, Grímsnes- og Grafningshreppur, Sveitarfélagið Árborg, Flóahreppur, Bláskógabyggð, Hrunamannahreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Ásahreppur, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra, Skaftárhreppur og Mýrdalshreppur reka byggðasamlagið Bergrisann, um málefni fatlaðs fólks. 

Aðildarsveitarfélögin fela byggðasamlaginu skipulag og framkvæmd þjónustu við fatlað fólk, sem á lögheimili í aðildarsveitarfélögunum, í samræmi við lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018.

Hlutverk byggðasamlagsins er að útfæra þjónustuna. Fjárhagslegri og faglegri umgjörð hennar er nánar lýst í samþykktum Bergrisans bs. 


Athugið að efni hér fyrir ofan er fengið af vef viðkomandi stofnana/fyrirtækja.

Hefur þú ábendingar eða frekari spurningar? Hafðu samband hér