Á þessari síðu söfnum við jöfnum höndum upplýsingum um aðgengi að veitinga/-og kaffihúsum. Sum eru reynslur fólks sem það sendir okkur. Ef þú hefur upplifað gott aðgengi á veitingastað eða kaffihúsi hvar sem er á landinu, sem ekki er að finna hér á síðunni, endilega láttu okkur þá vita.
Þá viljum við benda á símaappið TravAble og hvetja alla til að hala niður appinu í símana sína og dæla síðan þar inn upplýsingum um aðgengi hér og þar. Appið safnar saman aðgengisupplýsingum um fjölda staða vítt og breytt um landið og setur fólk þar inn reynslu sína og er þegar þar mikið magn upplýsinga um aðgengi hér og þar á landinu. Nánari upplýsingar um TravAble má finna á Sjálfsbjorg.is
Eftirtaldir veitingastaðir/-kaffihús eru með gott aðgengi samkvæmt reynslu hjólastólanotenda
Tryggvagötu 26 | 101 Reykjavík | 517 1818 | Vefsíða American Style
Aðgengilegt er inn á staðinn fyrir einstakling í rafknúnum hjólastól.
Pósthússtræti 11 | 101 Reykjavík |551 1440| hotelborg(hjá)hotelborg.is | Vefsíða Borg Restaurant
Samkvæmt upplýsingum frá hjólastólanotanda er veitingastaðurinn vel aðgengilegur hjólastólum og salernisaðstaða góð.
Austurstræti 14 | 101 Reykjavík | 551 1020 | cafeparis(hja)cafeparis.is|Vefsíða Café Paris
Gott aðgengi og salerni vel staðsett en salerni þröngt.
Grasagarðinum, Reykjavík | 104 Reykjavík | 553 8872 | info(hjá)floran.is | Vefsíða Flórunnar (Opnast í nýjum vafraglugga)
Gott aðgengi bæði fyrir utan og innan. Salerni aðgengilegt.
Bústaðavegur 153 | 108 Reykjavík | 527 5000 | grillhusid(hjá)grillhusid.is | Vefsíða Grillhússins
Aðgengilegt er að veitingastaðnum fyrir fólk í hjólastól og ágæt salernisaðstaða.
Lækjargata 2A | 101 Reykjavík | 571-7777 | info(hjá)grillmarkadurinn.is | Vefsíða Grillmarkaðsins
Hægt er að komast inn bakatil en svolítið þröngt er að fara á milli borða. Betra er að láta vita fyrirfram ef matargestir eru í hjólastólum.
Austurstræti 20 | 101 Reykjavík |561 2240|Facebooksíða Hressingarskálans
Aðgengilegt er inn á staðinn.
Austurbakki 2 | 101 Reykjavík |519 9700| info(hja)kolabrautin.is | Vefsíða Kolabrautarinnar
Kolabrautin er veitingarstaður og bar til húsa í tónlistarhúsinu Harpa sem margir þekkja. Það er lyfta alla leiðina upp, auðvelt að fara á milli borða og fínt aðgengi í alla staði.
Bankastræti 7 | 101 Reykjavík | 553 8140 | loft(hjá)hostel.is | Vefsíða Lofts
Farfuglaheimilið Loft er með kaffihús á 4. hæð sem er aðgengilegt hjólastólum.
Nauthólsvegi 106 | 101 Reykjavík | 599 6660 | nautholl(hjá)nautholl.is | Vefsíða Nauthóls
Samkvæmt símtali er þetta aðgengilegur veitingastaður fyrir hjólastólanotendur. Góð salernisaðstaða.
Strandgötu 75 | 220 Hafnafirði | 571 4144 | Pallett á facebook
Þetta kaffihús er með gott aðgengi. Hægt er að sitja innandyra og utandyra
Öskjuhlíð | Reykjavík | 562 0200 | perlan(hjá)perlan.is | Vefsíða Perlunnar
Kaffitería Perlunnar er á 4. hæð og er aðgengilegt inn í Perluna og með lyftu upp á 4. hæð
Brautarholti 2 | 105 Reykjavík | 552 3200 | mail(hja)reykjavikroasters.is | Vefsíða
Það er þröskuldur við útidyrnar en annars er kaffihúsið vel aðgengilegt.
Nauthólsvegi 52 | 101 Reykjavík | 444 4500 | [email protected] | Vefsíða Satt
Samkvæmt símtali er þetta aðgengilegur veitingastaður fyrir hjólastólanotendur. Góð salernisaðstaða.
Mýrargata 2 | 101 Reykjavík |560 8080 |slippbarinn(hjá)icehotels.is | Vefsíða Slippbarsins
Fínasta aðgengi að staðnum. Lyfta upp í veitingasal á annarri hæð.
Borgartúni | 105 Reykjavík | 527 2889 | borgartun(hjá)teogkaffi.is | Te & kaffi Borgartúni
Laugavegi 77 | 101 Reykjavík | 527 2890 | laugavegur77(hjá)teogkaffi.is | Te & kaffi Laugavegi
Skólavörðustíg | 101 Reykjavík | 527 2881 | skolavordustigur(hja)teogkaffi.is | Te & kaffi Skólavörðustíg
Te & Kaffi eru víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu. Kaffihús þeirra að Laugavegi 77, Skólavörðustíg og Borgartúni eru aðgengileg. Á Laugavegi 77 er gott aðgengi inn en það er þröngt inni. Te & Kaffi í Borgartúni er á tveim hæðum og er stigalyfta upp á efri hæðina.
Sjálfskráðar upplýsingar eru upplýsingar á ábyrgð veitingastaðanna/-kaffihúsanna sjálfra. Ekki er hægt að taka ábyrgð á slíkri skráningu, en auðvitað er hún oft í lagi. Við hvetjum ykkur til að hafa beint samband við viðkomandi veitingastað/-kaffihús til að fá nákvæmar upplýsingar.
Fákafen 9|108 Reykjavík|533 3010|
Café Meskí er vel staðsett og með gott hjólastólaaðgengi.
Fjarðagata 13-15, 2.hæð|220 Hafnarfjörður|555 6996|Vefsíða Silfurs
Rif bar & Restaurant er staðsett á 2.hæð í verslunarmiðstöðinni Firði. Þar er aðgengilegt fyrir hjólastólanotendur. Minni hjólastólar komast inn á salernið en stærra salerni er staðsett í Firði. Ef fólk kemur eftir kl.19 er best að láta vita á undan sér því lyftan er læst og eigandinn er með lykil að lyftunni og salerninu í Firði.
310 Borgarnes | 433 6600 | [email protected] | Vefsíða Hamar Icelandair hotels
Veitingastaðir hótelsins eru aðgengilegir hjólastólanotendum.
Borgarfjarðarbraut | 571 4433 | Borgarfjörður | Vefsíða Hversins
Við fengum upplýsingar varðandi salernisaðstöðu frá hjólastólanotanda. Utan á hurðinni er merki: Kvennasnyrting og fatlaðir. Handlaugin er í hærra lagi, sápuskammtari og handþurrkur hátt á vegg sem og spegillinn. Annað er í lagi.
Þarna er veitingasala og tjaldstæði.
Brúartorgi 1| 310 Borgarnes | 440 1333| Vefsíða N1 Borgarnesi
Hjólastólanotandi sendi okkur upplýsingar um salernisaðstöðuna. Snyrting fyrir fatlaða er karlamegin. Þar inni er líka hægt að skipta á ungabörnum. Stuðningsarmarnir eru frekar langt frá salernisskál. Handlaug í lagi en kraninn er stuttur. Sápuskammtari er fyrir ofan handlaug. Handþurrkukassinn er hátt upp á vegg.
Hefur þú ábendingar eða frekari spurningar? Hafðu samband hér