Styrkir til náms og verkefna

Hér getur þú séð yfirlit yfir nokkra styrki sem eru í boði á vegum sjóða og fyrirtækja. Hér er ekki fjallað um þá styrki sem almannatryggingar.

Ef þú hefur upplýsingar um aðila er veita reglulega styrki vildum við endilega heyra um þá:  Láttu okkur þá endilega vita.

ÖBÍ og aðildarfélög þess

Einhver aðildarfélög Öryrkjabandalags Íslands veita styrki til tiltekinna málefna, til dæmis vegna náms, rannsókna og ferðalaga. Oftast eru styrkirnir aðeins til félagsmanna þessara félgasamtaka.

Ferðastyrkir

Hjálparsjóður Sjálfsbjargar á Akureyri

Félagsmenn Sjálfsbjargar á Akureyri og nágrenni geta sótt um styrk til Hjálparsjóðs vegna ferðalaga innanlands eða erlendis vegna aukakostnaðar. Umsóknum skal skilað inn á þar til gerðum eyðublöðum og fer úthlutun fram á Alþjóðadegi fatlaðra 3. desember (ekki sjálfgefið að úthlutað sé árlega).

Hjálparliðasjóður Sjálfsbjargar          

Veitir hreyfihömluðu fólki styrk vegna hjálparliða á ferðalögum, sjá reglur sjóðsins

Hjálpaliðasjóður Sjálfsbjargar úthlutar styrkjum einu sinnum ári ef fjármagn leyfir og skulu umsóknir berast fyrir 1. apríl ár hvert. Stjórn sjóðsins ákvarðar upphæð styrks hverju sinni og við síðustu úthlutanir hafa upphæðirnar sem úthlutaðar hafa verið hverju sinni verið jafnháar til þeirra sem hafa verið samþykktir. Heildarupphæðin sem úthlutað er hverju sinni ræðst af ávöxtun sjóðsins. Þeir sem geta sótt um styrk verða að hafa verið félagar í aðildarfélagi SJálfsbjargar árið áður en þeir sækja um og líða verða 2 áður en unnt er að sækja aftur um styrk. Sjálfsbjargarfélagar sem ekki hafa fengið úthlutað áður hafa forgang. Leggja þarf fram ferðareikninga (skannaða) eftir að ferð hefur verið farin - fyrr er samþykktur styrkur ekki greiddur út. 

Hér eru upplýsingar um sjóðinn og þar er umsóknareyðublað sem er rafrænt og fara samskipti fram rafrænt og gögn þurfa helst að berast með netpósti á [email protected], en ef það er alls ekki mögulegt má senda þær á skrifstofu Sjálfsbjargar, Hátún 12, 105 Reykjavík.

Minningarsjóðir

Minningarsjóður Jóhanns Péturs Sveinssonar

Sjóðurinn veitir annars vegar styrki til hreyfihamlaðra einstaklinga til náms og hins vegar til verkefna sem tengjast úrbótum á aðgengi fatlaðs fólks. Það er ekki fyllt út sérstakt umsóknareyðublað en í  umsókn þarf að koma fram hver sækir um styrkinn (nafn, kennitala, heimilisfang, símanúmer, netfang) og hverslags styrk sótt er um. Þeir sem sækja um námsstyrk þurfa að sýna fram á að þeir séu skráðir í nám. Þeir aðilar sem eru að sækja um styrk vegna úrbóta í aðgengismálum þurfa að gefa skýringu á tilgangi verkefnisins, hvernig það er framkvæmt, á hvaða hátt það nýtist í framtíðinni og gera kostnaðaráætlun.

Ávallt er best að hafa greinargóðar lýsingar á aðstæðum. Fyrirspurnir um það hvort sé verið að veita styrki úr sjóðnum og síðan umsóknir í framhaldi skulu sendast á netfangið: sjalfsbjorg(hja)sjalfsbjorg.is.  Í Skipulagsskrá minningarsjóðs Jóhanns Péturs fást nánari upplýsingar um tilgang sjóðsins. Ekki er veitt úr sjóðnum árlega.

Mæðrastyrksnefnd

Mæðrastyrksnefnd hefur veitt fermingarstyrki á hverju vori og einnig styrki til barna til dvalar í sumarbúðum og vegna þátttöku í leikjanámskeiðum. Nánar um styrki Mæðrastyrksnefndar

Menntunarsjóður Mæðrastyrksnefndar

Sjóðurinn var stofnaður 19. april 2012 og er honum ætlað að styrkja tekjulágar konur og/eða mæður til menntunar.

Náms- og rannsóknarstyrkir

Hjálparsjóður Sjálfsbjargar á Akureyri

Félagsmenn Sjálfsbjargar á Akureyri og nágrenni geta sótt um styrk til Hjálparsjóðs vegna háskólanáms. Umsóknum skal skilað inn á þar til gerðum eyðublöðum og fer úthlutun fram á Alþjóðadegi fatlaðra 3. desember. Ekki er gefið að veitt sé úr sjóðnum árlega.

Menntun í lýðháskólum

Hægt er að fá styrki vegna menntunar í Lýðháskólum á Norðurlöndunum, nánar um styrki vegna Lýðháskóla.
Einnig veitir UMFÍ styrki til náms í lýðháskólum og tiltekinna verkefna.

Minningarsjóður Jóhanns Péturs Sveinssonar

Sjóðurinn hefur veitt styrki til náms og til úrbóta á aðgengi fatlaðs fólks. Umsækjendur þurfa að vera hreyfihamlaðir. Ekki þarf að fylla út sérstakt umsóknareyðublað en í  umsókn þarf að koma fram hver sækir um styrkinn (nafn, kennitala, heimilisfang, símanúmer, netfang) og hverslags styrk sótt er um. Þeir sem sækja um námsstyrk þurfa að sýna fram á að þeir séu skráðir í nám og gott er að greinargóðar lýsingar á stöðu einstaklingsins fylgi með. Fyrirspurnir um stöðu sjóðsins og hvort sé verið að úthluta úr honum og síðan umsóknir skulu sendast á netfangið: sjalfsbjorg(hjá)sjalfsbjorg.is. Í Skipulagsskrá minningarsjóðs Jóhanns Péturs fást nánari upplýsingar um tilgang sjóðsins. Ekki er veitt úr sjóðnum árlega.

Rannsóknarsjóður Odds Ólafssonar              

Sjóðurinn er í umsjón Brynju hússjóðs ÖBÍ og veitir hann styrki vegna rannsókna sem tengjast fötluðu fólki, nánar um Námssjóð Odds Ólafssonar

Styrkir sveitarfélaga

Sveitarfélögunum er heimilt, samkvæmt lögum um málefni fatlaðs fólks, að veita fötluðu fólki styrk til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga. Sjá nánar í leiðbeinandi reglugerð um þessa styrki.

Þorbjargarsjóður

Tilgangur sjóðsins er að styrkja gigtarfólk, sérstaklega ungt fólk með gigt.Upplýsingar um sjóðinn og aðra styrktarsjóði Giktarfélagsins má finna á vefsíðu félagsins

Ýmsir styrkir og lán til námsmanna

Á vefsíðu Ísland.is er hægt að finna gagnlegar upplýsingar um styrki til handa námsmönnum.

Á vefsíðu mennta- og menningamálaráðuneytis er yfirlit yfir styrki og sjóði á þeirra vegum, s.s. styrki til náms í öðrum löndum.

Bankarnir veita oft námsmönnum, sem eru viðskiptavinir, námsstyrki.

Styrkir fyrir nemendur í Háskóla Íslands

Stúdentar sem stunda nám í Háskóla Íslands geta sótt um styrki í nokkra sjóði. Á vef Háskóla Íslands eru nánari upplýsingar um styrki sem eru í boði.

Styrkir fyrir nemendur í Háskólanum í Reykjavík

Á heimasíðu Háskólans í Reykjavík má finna upplýsingar um styrki sem eru í boði fyrir nemendur við skólann.

Fulbright námsstyrkir

Fulbright stofnunin eflir samskipti Íslands og Bandaríkjanna á sviði mennta og rannsókna. Margvíslegir styrkir eru í boði fyrir háskólanema og jafnvel menntaskólanema. Sjá nánar á vefsíðu Fulbright

Fyrirtækjastyrkir og félagastyrkir

Fjölmörg fyrirtæki og stofnanir veita styrki. Hér fyrir neðan eru nokkur þeirra. Við upplýsingaröflunn um hverjir veita styrki er best að nota leitarvélas internetsins (t.d. Google) og slá inn leitarorðinu "samfélagsstyrkir" eða "samfélagssjóðir" og koma þá upp fjölmargir aðilar er veita styrki til góðra málefna. Þá þiggjum gjarnan ábendingar um aðila sem veita styrki sem geta nýst fötluðu fólki.

Krónan

Verslunarkeðjan Krónan veitir árlega styrki til margvíslegra samfélagaverkefni. Nánari upplýsingar .

Vildarbörn

Icelandair veitir styrki til ferðalaga fyrir veik börn og fjölskyldur þeirra. Úthlutað er styrkjum tvisvar sinnum á ári, á sumardaginn fyrsta og fyrsta vetrardag. Nánar um Vildarbörn.

Olíufélagið Skeljungur

veitir styrki til samfélagslegra málefna og er hægt að nálgast upplýsingar um hann á vefsíðu þeirra.

Íslandsbanki

Bankinn veitir styrki til íþrótta- og menningastarfs. Nánar um styrki Íslandsbanka

Landsbankinn

Árlega veitir Landsbankinn styrki til samfélagsverkefn og námsstyrki - nánari upplýsingar

Rio Tinto Alcan á Íslandi

Alcan veitir styrki til samfélagslegra málefna. Nánar um Samfélagssjóð Rio Tinto Alcan á Íslandi.

Sjálfsbjörg á Akureyri og nágrenni

Hjálparsjóður Sjálfbjargar á Akureyri og nágrenni styrkir félagsmenn sína til:

  • háskólanáms
  • aðlögunar á umhverfi og tækjakaupa vegna atvinnu, náms, tómstunda eða til boðskipta
  • ferðalaga innanlands eða erlendis vegna aukakostnaðar
  • annarra þeirra verkefna sem stjórn sjóðsins metur hæf svo sem nýsköpunar- og sprotaverkefna
Styrkir og sjóðir á vegum hins opinbera

Atvinnuvega – og nýsköpunarráðuneytið

  • Framkvædasjóður ferðamannastaða heyrir undir Ferðamálastofu. Stjórn sjóðsins er skipuð af ráðherra.  Markmið og hlutverk sjóðsins að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun ferðamannastaða í opinberri eigu eða umsjón um land allt. Þá skal með fjármagni úr sjóðnum leitast við að tryggja öryggi ferðamanna og vernda náttúru landsins.

Stjórnarráðið

  • Jafnréttissjóður Íslands.  Megintilgangur sjóðsins er að fjármagna eða styrkja verkefni og rannsóknir sem miða að því að efla jafnrétti kynjanna bæði í ísensku samélagi og á alþjóða vísu.
Aðrir styrkir

Kraftur - stuðningsfélag Ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein

Meginmarkmið Krafts eru að styðja við ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur með því að halda úti jafningjastuðningi, hagsmunagæslu, öflugri fræðslu, fjárhagslegum stuðningi, samveru á jafningjagrunni, veita hagnýtar upplýsingar og stuðla að samvinnu félagasamtaka, heilbrigðisstarfsmanna og annarra sem koma að málefnum þeirra sem tengjast sjúkdómnum. hjá félaginu er hægt að sækja um fjárhagslegan stuðning og eru allar upplýsingar um það á heimasíðu félagsins.

Styrktarsjóður Umhyggju.

Hlutverk Styrktarsjóðs langveikra barna er að styrkja fjölskyldur sem orðið hafa fyrir fjárhagsörðugleikum vegna veikinda barna þeirra.

Útfararstyrkir

Engir sérstakir styrkir eru til fyrir öryrkja vegna útfarar.

Flest stéttarfélög greiða útfararstyrki og er fólki bent á að hafa samband við stéttarfélag hins látna eða sjúkrasjóð viðkomandi félags  og kanna málið. Athugið að reglurnar eru mismunandi hjá stéttarfélögunum.

Ef ljóst er að dánarbú viðkomandi stendur ekki undir kostnaði geta aðstandendur sótt um útfararstyrk í því sveitarfélagi sem viðkomandi bjó í. Það þarf þá staðfestingu sýslumanns á eignarlausu búi. Best er að hafa samband við viðkomandi félagsþjónustu til að fá nánari upplýsingar um hvernig sótt er um styrk og hvaða gagna þarf að afla. Hér eru upplýsingar af vefsíðu Landsspítalans um ýmis réttindi fólks vegna andláts .

Athugið að efni hér fyrir ofan er fengið af vef viðkomandi stofnana/fyrirtækja.

Hefur þú ábendingar eða frekari spurningar? Hafðu samband hér