Hagnýt ráð fyrir hreyfihamlaða foreldra

Hugmyndir af lausnum fyrir hreyfihamlaða foreldra

Hér eru upplýsingar fyrir hreyfihamlaða foreldra um vörur sem gætu gagnast við umönnun barnsins. Hafa ber í huga að nýjar vörur eru sífellt að koma fram og fleiri verslanir gætu verið að bjóða svipaðar vörur í einhverjum tilfelllum. Þá er unnt að finna urmull af erlendum fyrirtækjum sem eru að selja samsvarandi vörur og er alltaf að verða auðveldara að panta og fá vöruna send til landsins.

Baðsæti

Baðsæti fyrir yngstu börnin er sniðug lausn fyrir hreyfihamlaða foreldra. Baðsæti tryggir öryggi barnsins og auðveldar böðun.    

Barnabílstólar

Til eru barnabílstólar sem hægt er að festa á kerru og geta hentað hreyfihömluðum foreldrum sem eiga erfitt með að halda á barninu í barnabílstólnum út í bíl vegna jafnvægisleysis og/eða kraftleysis.    
Hér að neðan má sjá nokkur dæmi um barnabílstóla sem festa má á kerru (maí 2016).

Einnig eru til barnabílstólar sem hægt er að snúa á hlið til að auðvelda manni bæði við að setja barnið í stólinn og losa það úr honum. Stóllinn er af gerðinni Britax Dualfix og fæst í Ólavía og Oliver og Bílanaust.

Beisli

Hreyfihamlaðir foreldrar eiga oft ekki létt með að hlaupa á eftir barni er tekur sprettinn. Því geta einföld beisli hentað hreyfihömluðum foreldrum vel, sérstaklega þeim sem eru hræddir um að barnið hlaupi frá sér og hafa ekki getuna til að hlaupa á eftir barninu. Með beisli er hægt að tryggja öryggi barnsins þegar farið er út.

Brjóstagjafapúðar

Nauðsynlegt er að hafa góðan stuðning undir handleggi þegar barni er gefið brjóst.

Bara púði er stuðningspúði sem hægt er að nota sem brjóstagjafapúða. Púðinn hentar einnig sem stuðningur fyrir fólk sem notar hjólastól. Púðinn er hannaður af iðjuþjálfa.  Hjólastólanotendur geta sótt um styrk til kaupa á púðanum til Hjálpartækjamiðstöðvar.

Rimlarúm fyrir börn

Hægt er að fá nokkrar gerðir af rimlarúmum fyrir börn sem geta hentað vel fyrir hreyfihamlaða foreldra.

  • Rafstýrð hæðarstillanleg rimlarúm með harmonikkuhurð

Skiptiborð og dýnur

Til eru skiptiborð og skiptidýnur sem geta hentað hreyfihömluðum foreldrum svo sem borð sem festast á vegg og dýnur sem hægt er að leggja á rúm eða borð með eða án kanta.

Úlnliðsband

Úlnliðsband hentar vel fyrir hreyfihamlaða foreldra, til að tryggja öryggi barna sinna, t.d. í margmenni eða á ferðalögum eða einfaldlega þegar verið er úti í göngutúr til að koma í veg fyrir að barn geti hlaupið frá þeim.

Vagga á hjólum

Fyrir hreyfihamlaða foreldra með skert jafnvægi eða þá sem eru kraftlausir og treysta sér ekki til að halda á litlu barni um íbúðina getur verið gott að hafa vöggu á hjólum og geta keyrt vögguna á milli staða í íbúðinni.

Aðrar gagnlegar upplýsingar

Vatnsheld lök á rúm

Nokkrir innflutningsaðilar selja vatnsheld lök á rúm sem geta verið mjög hentug til að verja rúmdýnuna sé möguleiki á að líkamsvessi fari í rúmið. Hafi fólk upplýsingar um fleiri aðila sem selja vatnsheld lök á rúm en neðangreinda aðila þiggur Þekkingarmiðstöðin upplýsingarnar. Eirberg og Stoð.

Þroskaleikföng

Ýmsar verslanir sem selja leikföng selja sérstök þroskaleikföng. Þær verslanir sem gefa sig sérstaklega út fyrir að selja þroskaleikföng fyrir börn eru verslanirnar ABC leikföng , Krumma og  leikfangaland.is

Samtök og stofnanir sem veita ráðgjöf

Hér að neðan má finna upplýsingar um stofnanir sem geta veitt foreldrum með hreyfihömlun ráðgjöf og stuðning til að geta sinnt hlutverki sínu sem best og veita einnig foreldrum hreyfihamlaðra barna ráðgjöf.

Sjónarhóll

Vefsíða Sjónarhóls

Sjónarhóll er ráðgjafamiðstöð fyrir foreldra og aðstandendur fatlaðra og langveikra barna. Sjónarhóll var stofnað þegar ADHD samtökin, Landssamtökin Þroskahjálp, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra og Umhyggja, félag til stuðnings langveikum börnum, sameinuðu krafta sína til að geta mætt þörf foreldra fyrir stuðning og ráðgjöf.  

Einstök börn

Vefsíða Einstakra barna

Einstök börn er stuðningsfélag barna og ungmenna með sjaldgæfa, jafnvel ógreinda sjúkdóma eða skerðingar. Ástæðan fyrir stofnun félagsins var sú að ákveðin börn í samfélaginu áttu ekki heima í neinum öðrum félagasamtökum og töldu þeir foreldrar sem hófu starfsemi Einstakra barna að þar gætu þau fundið sameiginlegan vettvang til að deila reynslu og vinna að bættum hag barna sinna.

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

Vefsíða Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra var stofnað árið 1952 og hefur frá upphafi verið frumkvöðull í þjónustu við fötluð börn og ungmenni. Meginmarkmið félagsins er að stuðla að aukinni orku, starfshæfni og velferð fólks með fötlun, einkum barna. Helstu verkefni félagsins eru:  rekstur Æfingastöðvarinnar og rekstur sumar- og vetrardvalar fyrir fötluð börn og ungmenni í Reykjadal Mosfellsbæ.

Umhyggja, félag til stuðnings langveikum börnum

Vefsíða Umhyggju

Umhyggja er félag sem vinnur að bættum hag sjúkra barna og fjölskyldna þeirra. Í félaginu starfa foreldrar langveikra barna og fagfólk innan heilbrigðiskerfisins. Einnig eru félög og hópar foreldra langveikra barna í félaginu.

Rjóður, hvíldarheimili fyrir langveik börn

Vefsíða Rjóðurs

Starfsemi Rjóðurs gefur börnum með ólæknandi sjúkdóma möguleika á að dvelja reglulega í öruggu umhverfi þar sem þau njóta umönnunar hjúkrunarmenntaðs fagfólks, en öryggi og velferð barnanna sem dvelja á heimilinu er lykilatriði. Markmið Rjóðurs er að gefa fjölskyldum langveikra barna tækifæri til að lifa eðlilegu lífi og gefa þeim hvíld frá mikilli umönnun og hjúkrun, að veita langveikum börnum umönnun og hjúkrun eftir þörfum hvers og eins og að gefa börnunum lífsgæði og afþreyingu eftir þörfum hvers og eins.

Barnaspítali Hringsins

Vefsíða Barnaspítala Hringsins

Barnaspítali Hringsins stendur á horni Barónsstígs og Hringbrautar og snýr aðalinngangur að Hringbraut. Á Barnaspítala Hringsins er veitt fjölbreytt þjónusta við börn og unglinga að 18 ára aldri. Þverfagleg teymi, skipuð læknum, hjúkrunarfræðingum og öðru heilbrigðisstarfsfólki sinna skjólstæðingum ýmissa sérsviða.

Erlendar vefsíður með hagnýttum fróðleik

Erlendar vefsíður

Mörg samtök fatlaðra foreldra erlendis halda úti vefsíðum þar sem fólk deilir reynslu sinni og gefur góð ráð. Á þessum síðum er oft hægt að finna ýmsar tæknilegar lausnir eða lausnir varðandi sérsmíði á barnahúsgögnum eða öðrum barnavörum og hver selur vörurnar.

Samtökin Disability, Pregnancy & Parenthood International

DPPI eða Disability, Pregnancy & Parenthood International  eru samtök sem starfrækt eru í Bretlandi. Þau eru ætluð til stuðnings fötluðum foreldrum, á meðgöngunni og eftir að barnið er fætt. Auk þess að fræða fagfólk sem vinnur með fötluðu fólki, til dæmis heilbrigðisstarfsfólk og félagsráðgjafa.

Disabled parents network

DPN eða Disabled Parents Network eru alþjóðleg samtök. Markmið þeirra er að veita upplýsingar, vera ráðgefandi og styðjandi við fatlaða foreldra og fjölskyldur þeirra. Samtökin hafa þá sýn að fatlað fólk eigi líkt og  aðrir að geta orðið foreldrar og upplifað fjölskyldulíf.

Directgov

Directgov eru með upplýsingar um opinbera þjónustu í Bretlandi, meðal annars fyrir fatlaða foreldra sem og fatlaða einstaklinga sem eru verðandi foreldrar. Getur gefið okkur alls konar hugmyndir. Sjá hér um Directgov                

The National Center for Parents with Disabilities

Þetta eru Amerísk samtök sem styðja við fatlaða foreldra og halda úti vefsíðu með margvíslegum fróðleik um málefnið. Sjáið vefsíðuna.

10 frábærir hlutir fyrir fatlaða foreldra

10 Amazing Products for Parents with Disability. Þetta er skemmtileg samantekt sem tiltekur 10 frábæra hluti sem komam sér vel fyrir fatlaða foreldra. Lýsir vörunum og tiltekur seljendur. Sjáið vefsíðuna.

Rica

Rica eru samtök sem meðal annars gera rannsóknir og veita upplýsingar og gefa ráð um barnavörur til fatlaðra foreldra.  

Samlíf

Hjálpartæki ástarlífsins 

Á vefsíðunni Intimate Rider má finna upplýsingar um hjálpartæki sem auðvelda hreyfihömluðu fólki að stunda kynlíf. 

Nokkrar verslanir selja hjálpartæki ástarlífsins hérlendis, t.d. Adam og Eva,  meyjan.is, blush.is og tantra.is

Vefsíður

Myndbönd

Hefur þú ábendingar eða frekari spurningar? Hafðu samband hér