{"id":13268,"date":"2026-04-20T13:55:27","date_gmt":"2026-04-20T13:55:27","guid":{"rendered":"https:\/\/sjalfsbjorg.is\/?p=13268"},"modified":"2026-04-20T13:55:29","modified_gmt":"2026-04-20T13:55:29","slug":"baett-adgengi-i-sveitarfelogum-a-50-afslaetti","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/sjalfsbjorg.is\/en\/baett-adgengi-i-sveitarfelogum-a-50-afslaetti\/","title":{"rendered":"B\u00e6tt a\u00f0gengi \u00ed sveitarf\u00e9l\u00f6gum \u00e1 50% afsl\u00e6tti"},"content":{"rendered":"<p>Fr\u00e1 \u00fev\u00ed 2001 hafa sveitarf\u00e9l\u00f6gin \u00e1tt kost \u00e1 veglegum styrkjum fr\u00e1 r\u00edkinu til \u00farb\u00f3ta \u00ed a\u00f0gengism\u00e1lum. \u00der\u00e1tt fyrir h\u00e1v\u00e6ra umr\u00e6\u00f0u um vanfj\u00e1rm\u00f6gnun \u00ed m\u00e1laflokki fatla\u00f0s f\u00f3lks f\u00f3ru t\u00e6par 120 millj\u00f3nir kr\u00f3na forg\u00f6r\u00f0um \u00e1 \u00e1runum 2021-2024. Eftirspurnin eftir styrkjunum var of l\u00edtil.<\/p>\n\n\n\n<h2 class=\"wp-block-heading\">Mikil vitundarvakning \u00ed a\u00f0gengism\u00e1lum<\/h2>\n\n\n\n<p>Vi\u00f0 h\u00f6fum lyft grettistaki \u00ed a\u00f0gengism\u00e1lum undanfarin \u00e1r. Haraldur \u00deorleifsson \u00e1tti frumkv\u00e6\u00f0i\u00f0 a\u00f0 R\u00f6mpum upp \u00cdsland \u00e1takinu sem var vel stutt af fj\u00f6lda fyrirt\u00e6kja, f\u00e9lagasamtaka og einstaklinga \u00e1samt r\u00edkisstj\u00f3rninni og sveitarf\u00e9l\u00f6gum v\u00ed\u00f0a um land.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00dea\u00f0 hefur veri\u00f0 einstaklega \u00e1n\u00e6gjulegt a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed verkefninu og ver\u00f0a vitni a\u00f0 \u00feeirri vitundarvakningu sem hefur or\u00f0i\u00f0 \u00ed samf\u00e9laginu. Reistir voru 1756 rampar sem hafa gj\u00f6rbreytt m\u00f6guleikum fatla\u00f0s f\u00f3lks \u00e1 a\u00f0 komast um, sinna daglegum ath\u00f6fnum og nj\u00f3ta l\u00edfsins \u00e1 vi\u00f0 anna\u00f0 f\u00f3lk. \u00d6ll h\u00f6fum vi\u00f0 fengi\u00f0 betri skilning \u00e1 \u00fev\u00ed hversu hamlandi \u00fea\u00f0 er fyrir hreyfihamla\u00f0 f\u00f3lk a\u00f0 komast ekki lei\u00f0ar sinnar og \u00feurfa st\u00f6\u00f0ugt a\u00f0 \u00f3ska eftir a\u00f0sto\u00f0 vi\u00f0 einfalda hluti eins og a\u00f0 komast inn \u00ed b\u00fa\u00f0ir e\u00f0a fara \u00fat a\u00f0 bor\u00f0a.<\/p>\n\n\n\n<h2 class=\"wp-block-heading\">N\u00fa er komi\u00f0 a\u00f0 sveitarf\u00e9l\u00f6gunum<\/h2>\n\n\n\n<p>R\u00f6mpum upp \u00cdsland lauk formlega \u00ed mars 2025. \u00dea\u00f0 er \u00fev\u00ed afskaplega mikilv\u00e6gt a\u00f0 sveitarf\u00e9l\u00f6gin taki vi\u00f0 keflinu og stu\u00f0li \u00e1fram a\u00f0 b\u00e6ttu a\u00f0gengi me\u00f0 \u00f6flugum h\u00e6tti. Sveitarf\u00e9l\u00f6gin gegna n\u00fa \u00feegar lykilhlutverki \u00ed a\u00f0gengism\u00e1lum \u00fear sem \u00feau bera \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 b\u00e6\u00f0i skipulagsm\u00e1lum og eftirliti me\u00f0 framkv\u00e6mdum.<\/p>\n\n\n\n<p>R\u00edkisstj\u00f3rnin studdi R\u00f6mpum upp \u00cdsland me\u00f0 200 millj\u00f3na kr\u00f3na framlagi \u00e1 fj\u00f6gurra \u00e1ra t\u00edmabili. \u00dea\u00f0 hefur kannski ekki fari\u00f0 jafn h\u00e1tt, en sveitarf\u00e9l\u00f6gunum standa einnig til bo\u00f0a veglegir styrkir fr\u00e1 J\u00f6fnunarsj\u00f3\u00f0i til \u00farb\u00f3ta \u00e1 a\u00f0gengi fyrir fatla\u00f0 f\u00f3lk.<\/p>\n\n\n\n<p>R\u00edki\u00f0 gaf vilyr\u00f0i fyrir allt a\u00f0 778 millj\u00f3num kr\u00f3na \u00e1 t\u00edmabilinu 2021-2024, sem n\u00fdta m\u00e1tti til a\u00f0 b\u00e6ta a\u00f0gengi a\u00f0 byggingum, almenningssamg\u00f6ngum, \u00fatisv\u00e6\u00f0um og almannag\u00f6r\u00f0um og einnig til a\u00f0l\u00f6gunar \u00e1 vinnust\u00f6\u00f0um fatla\u00f0s f\u00f3lks. Styrkirnir nema allt a\u00f0 helmingi framkv\u00e6mdakostna\u00f0ar \u00e1 m\u00f3ti samb\u00e6rilegu framlagi sveitarf\u00e9laganna. \u00c1taki\u00f0 er unni\u00f0 \u00ed n\u00e1nu samstarfi vi\u00f0 \u00d6B\u00cd r\u00e9ttindasamt\u00f6k.<\/p>\n\n\n\n<h2 class=\"wp-block-heading\">Er a\u00f0gengi\u00f0 best fyrir vestan?<\/h2>\n\n\n\n<p>Framtaki\u00f0 hefur skila\u00f0 s\u00e9r \u00ed fj\u00f6lda g\u00f3\u00f0ra verkefna, eins og til d\u00e6mis b\u00e6ttu a\u00f0gengi a\u00f0 sk\u00f3lum og leiksk\u00f3lum, leiksv\u00e6\u00f0um, \u00fatisv\u00e6\u00f0um, sundlaugum og h\u00fasn\u00e6\u00f0i \u00e1 vegum sveitarf\u00e9laganna. Eftirspurnin eftir styrkjunum hefur hins vegar ekki veri\u00f0 n\u00e6g. \u00der\u00e1tt fyrir a\u00f0 fj\u00f6ldi sveitarf\u00e9laga n\u00fdti s\u00e9r styrkina til fulls hefur hluti fj\u00e1rmagnsins hreinlega gufa\u00f0 upp \u00fear sem sum sveitarf\u00e9l\u00f6g og jafnvel heilu landshlutarnir hafa l\u00e1ti\u00f0 liggja \u00e1 milli hluta a\u00f0 s\u00e6kja um.<\/p>\n\n\n\n<p>Sveitarf\u00e9l\u00f6gin \u00e1 Vestfj\u00f6r\u00f0um \u00e1ttu til d\u00e6mis kost \u00e1 t\u00e6plega 20 millj\u00f3na kr\u00f3na styrkjum \u00e1 t\u00edmabilinu 2023-2024 en s\u00f3ttu s\u00e9r \u00fe\u00e1 ekki. Kannski eru a\u00f0gengism\u00e1lin bara \u00ed sk\u00ednandi lagi fyrir vestan?<\/p>\n\n\n\n<p>\u00dea\u00f0 sama \u00e1 vi\u00f0 um Su\u00f0urnesjab\u00e6, sem hefur l\u00e1ti\u00f0 s\u00e9r 15 millj\u00f3nir \u00far greipum renna, en sveitarf\u00e9lagi\u00f0 hefur ekki s\u00f3tt um eina einustu kr\u00f3nu \u00ed a\u00f0gengisstyrki. Samtals misstu Su\u00f0urnesjab\u00e6r, Borgarbygg\u00f0, Hvalfjar\u00f0arsveit, Grindav\u00edkurb\u00e6r og sveitarf\u00e9l\u00f6gin \u00e1 Vestfj\u00f6r\u00f0um af styrkjum upp \u00e1 46 millj\u00f3nir \u00e1 \u00e1runum 2023-2024, en ekkert \u00feeirra s\u00f3tti um styrki \u00e1 t\u00edmabilinu.<\/p>\n\n\n\n<p>Fyrstu tv\u00f6 \u00e1rin st\u00f3\u00f0u sveitarf\u00e9l\u00f6gunum 363 millj\u00f3nir til bo\u00f0a, en einungis 309 millj\u00f3num var \u00fathluta\u00f0. 2023 til 2024 var upph\u00e6\u00f0in 415 millj\u00f3nir, en af \u00feeim var 352 millj\u00f3num r\u00e1\u00f0stafa\u00f0. Samtals hafa sveitarf\u00e9l\u00f6gin \u00fev\u00ed or\u00f0i\u00f0 af 117 millj\u00f3num kr\u00f3na fr\u00e1 \u00e1rinu 2021 sem n\u00fdta hef\u00f0i m\u00e1tt til framkv\u00e6mda fyrir 234 millj\u00f3nir e\u00f0a meira. \u00dea\u00f0 munar um minna.<\/p>\n\n\n\n<h2 class=\"wp-block-heading\">Fj\u00e1rmagn \u00ed bo\u00f0i til frekari \u00farb\u00f3ta<\/h2>\n\n\n\n<p>\u00dea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir hins vegar ekkert anna\u00f0 en a\u00f0 l\u00edta fram \u00e1 veginn. Vi\u00f0 viljum n\u00fdta t\u00e6kif\u00e6ri\u00f0 \u00ed a\u00f0draganda kosninga til a\u00f0 hvetja sveitarf\u00e9l\u00f6gin til a\u00f0 fulln\u00fdta \u00fea\u00f0 fj\u00e1rmagn sem \u00ed bo\u00f0i er til \u00farb\u00f3ta \u00ed a\u00f0gengism\u00e1lum. \u00cd lj\u00f3si erfi\u00f0rar fj\u00e1rhagsst\u00f6\u00f0u sveitarf\u00e9laganna hl\u00fdtur \u00fea\u00f0 a\u00f0 vera eftirs\u00f3knarvert a\u00f0 f\u00e1 fj\u00e1rmagn til framkv\u00e6mda sem eru b\u00e6\u00f0i atvinnuskapandi og \u00fej\u00f3\u00f0hagslega hagkv\u00e6mar. B\u00e6tt a\u00f0gengi \u00e1 50% afsl\u00e6tti!<\/p>\n\n\n\n<p>\u00cd febr\u00faar 2025 tilkynnti r\u00edkisstj\u00f3rnin um 464 millj\u00f3na kr\u00f3na framlag til \u00farb\u00f3ta \u00e1 a\u00f0gengi \u00e1 \u00e1runum 2025-2026. Einungis 111 millj\u00f3num hefur veri\u00f0 r\u00e1\u00f0stafa\u00f0 til \u00feessa og \u00fev\u00ed eru hvorki meira n\u00e9 minna en 353 millj\u00f3nir eftir \u00ed pottinum. Til vi\u00f0b\u00f3tar hefur J\u00f6fnunarsj\u00f3\u00f0ur fengi\u00f0 heimild til a\u00f0 styrkja sveitarf\u00e9l\u00f6g um allt a\u00f0 fimm millj\u00f3nir kr\u00f3na \u00ed tengslum vi\u00f0 kaup og uppsetningu \u00e1 lyftum, sem geta haft gr\u00ed\u00f0arlega \u00fe\u00fd\u00f0ingu fyrir a\u00f0gengi fatla\u00f0s f\u00f3lks.<\/p>\n\n\n\n<h2 class=\"wp-block-heading\">N\u00fdtum fj\u00e1rmagni\u00f0 til fulls<\/h2>\n\n\n\n<p>\u00cd lokin m\u00e1 kannski vekja athygli \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e1 \u00feessu \u00e1ri standa sveitarf\u00e9l\u00f6gunum \u00e1 Vestfj\u00f6r\u00f0um til bo\u00f0a 18 millj\u00f3nir kr\u00f3na \u00ed styrki, sveitarf\u00e9l\u00f6gunum \u00ed Borgarfir\u00f0i 5,5 millj\u00f3nir og Hvalfjar\u00f0arsveit r\u00famar 4 millj\u00f3nir. Me\u00f0 r\u00e9ttu a\u00f0gengisverkefnunum getur Su\u00f0urnesjab\u00e6r n\u00e1\u00f0 s\u00e9r \u00ed r\u00famlega 8 millj\u00f3na kr\u00f3na styrki fyrir lok \u00e1rs.<\/p>\n\n\n\n<p>J\u00f6fnunarsj\u00f3\u00f0ur hefur me\u00f0 styrkjunum skapa\u00f0 hvata til \u00farb\u00f3ta \u00ed a\u00f0gengism\u00e1lum fyrir 2,5 milljar\u00f0a e\u00f0a meira. \u00dea\u00f0 er mj\u00f6g vel a\u00f0 verki sta\u00f0i\u00f0, en a\u00f0 sama skapi eru \u00fea\u00f0 vonbrig\u00f0i a\u00f0 t\u00e6kif\u00e6rin til a\u00f0 b\u00e6ta a\u00f0gengi s\u00e9u ekki n\u00fdtt til fulls. \u00de\u00f6rfin \u00e1 \u00farb\u00f3tum er auglj\u00f3slega til sta\u00f0ar \u2013 l\u00edka fyrir vestan.<\/p>\n\n\n\n<p>N\u00fdtum fj\u00e1rmagni\u00f0 til fulls, \u00fea\u00f0 er g\u00f3\u00f0 stj\u00f3rns\u00fdsla.<\/p>\n\n\n\n<p><em>\u00deur\u00ed\u00f0ur Harpa Sigur\u00f0ard\u00f3ttir, forma\u00f0ur Sj\u00e1lfsbjargar, landssambands hreyfihamla\u00f0ra.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p><em>Harpa Cilia Ing\u00f3lfd\u00f3ttir, s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ingur \u00ed a\u00f0gengism\u00e1lum og forma\u00f0ur Sj\u00e1lfsbjargar \u00e1 h\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0inu.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p><\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Fr\u00e1 \u00fev\u00ed 2001 hafa sveitarf\u00e9l\u00f6gin \u00e1tt kost \u00e1 veglegum styrkjum fr\u00e1 r\u00edkinu til \u00farb\u00f3ta \u00ed a\u00f0gengism\u00e1lum. \u00der\u00e1tt fyrir h\u00e1v\u00e6ra umr\u00e6\u00f0u um vanfj\u00e1rm\u00f6gnun \u00ed m\u00e1laflokki fatla\u00f0s f\u00f3lks f\u00f3ru t\u00e6par 120 millj\u00f3nir kr\u00f3na forg\u00f6r\u00f0um \u00e1 \u00e1runum 2021-2024. Eftirspurnin eftir styrkjunum var of l\u00edtil. Mikil vitundarvakning \u00ed a\u00f0gengism\u00e1lum Vi\u00f0 h\u00f6fum lyft grettistaki \u00ed a\u00f0gengism\u00e1lum undanfarin \u00e1r. Haraldur \u00deorleifsson [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":13271,"comment_status":"open","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-13268","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-starfsemin"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/sjalfsbjorg.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/13268","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/sjalfsbjorg.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/sjalfsbjorg.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/sjalfsbjorg.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/sjalfsbjorg.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=13268"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/sjalfsbjorg.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/13268\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":13272,"href":"https:\/\/sjalfsbjorg.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/13268\/revisions\/13272"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/sjalfsbjorg.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media\/13271"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/sjalfsbjorg.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=13268"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/sjalfsbjorg.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=13268"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/sjalfsbjorg.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=13268"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}