Þjónusta sveitarfélaga

Skaftárhreppur (Kirkjubæjarklaustur)

Skaftárhreppur

Kirkjubæjarklaustur

Klausturvegi 15 | 880 Kirkjubæjarklaustur | 487 4840 | klaustur@(hjá)klaustur.is | Vefsíða Skaftárhrepps

Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu sinnir íbúum Ásahrepps, Rangárþings ytra, Rangárþings eystra, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps. Höfuðstöðvar félagsþjónustunnar eru að Hellu (Suðurlandsbraut 1, 850 Hellu - sími 48708125). Starfsmennirnir hafa einnig aðstöðu á skrifstofum sveitarfélaganna til að íbúar geti nýtt sér þjónustuna nærri heimabyggð. Starfsmenn félagsþjónustunnar fara jafnframt á heimili fólks ef það hefur ekki tök á að fara á skrifstofu sveitarfélagsins.

Bergrisinn bs

Sveitarfélögin Hveragerðisbær, Sveitarfélagið Ölfus, Grímsnes- og Grafningshreppur, Sveitarfélagið Árborg, Flóahreppur, Bláskógabyggð, Hrunamannahreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Ásahreppur, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra, Skaftárhreppur og Mýrdalshreppur reka byggðasamlagið Bergrisann, um málefni fatlaðs fólks. 

Aðildarsveitarfélögin fela byggðasamlaginu skipulag og framkvæmd þjónustu við fatlað fólk, sem á lögheimili í aðildarsveitarfélögunum, í samræmi við lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018.

Hlutverk byggðasamlagsins er að útfæra þjónustuna. Fjárhagslegri og faglegri umgjörð hennar er nánar lýst í samþykktum Bergrisans bs. 

Hefur þú ábendingar eða frekari spurningar? Hafðu samband hér