Asía

Nú orðið er best að " googla " viðkomustaðinn, því það er orðið mikið magn af upplýsingum á netinu um ferðalög hreyfihamlaðs/fatlaðs fólks, ferðamöguleikum þess, reynslusögum fólks, og upplýsingum um aðgengismál í viðkomandi landi eða borg. Ef fara á t.d. til Bankok í Tælandi notið leitarorðin "access for disabled in Bankok" og gífurlegt magn upplýsinga koma upp.

Asíulöndin eru með afar ólík aðgengismál og er aðgengið einna best í stærstu borgunum sem hafa verið að byggjast upp síðasta áratuginn, en utan stóru borganna er aðgengi almennt ekki gott. Því er mjög mikilvægt að kynna sér viðkomustaðina vel fyrirfram og leita einstaklinga sem hafa farið á viðkomandi stað áður og getur deilt upplýsingum.

Heimasíðan Wheelchair Travel - Open your World veitir góðar upplýsingar um aðgengi í Asíulöndunum.

Hefur þú ábendingar eða frekari spurningar? Hafðu samband hér