Á vef Ríkisskattstjóra má sjá allar upplýsingar er varða skattgreiðslur, sjá nánar á vefsíðu Ríkiskattsstjóra. Sími 442-1000. Starfsstöðvar Ríkisskattstjóra eru víða um land, sjá staðsetningu starfsstöðva hér.
Við viljum benda fólki á að gott getur verið að merkja við að það vilji slysatryggingu við heimilisstörf á skattskýrslunni. Kostnaður tryggingarinnar er lítill (var 550 árið 2019), en hún getur skipt sköpum ef fólk slasast á heimili sínu. Reiturinn, þar sem óskað er eftir slysatryggingu við heimilisstörf, er hægra megin við reitinn þar sem fram kemur nafn einstaklingsins og heimilisfang hans.
Á vef ríkisskattstjóra er búið að taka saman upplýsingar um lækkun skattstofns (ívilnun) sem gott er að hafa í huga við útfyllingu skattframtalsins.
Til að sækja um lækkun er fyllt út eyðublað 3.05 umsókn um lækkun (ívilnun), eyðublaðið er neðst á þessari síðu.
Útvarpsgjald er lagt á alla einstaklinga 16-70 ára sem eru með tekjur yfir tekjumörkum. Tekjuviðmið breytist milli ára.
Undanþegnir útvarpsgjaldi eru elli- og örorkulífeyrisþegar sem dvelja á dvalar- og hjúkrunarheimilum og þeir sem eru 70 ára og eldri í lok tekjuársins.
Fjárhæð útvarpsgjalds getur verið breytileg milli ára. Upplýsingar um fjárhæð útvarpsgjalds og tekjumörk einstaklinga er að finna á vef ríkisskattstjóra. Útvarpsgjaldið er kr.18.800 kr hjá einstaklingum með tekjur yfir 1.938.025
Athugið að efni hér fyrir ofan er fengið af vef viðkomandi stofnana/fyrirtækja
Hefur þú ábendingar eða frekari spurningar? Hafðu samband hér