Þjónusta sveitarfélaga getur verið veitt af sveitarfélagi, byggðarsamlagi eða öðru formlegu samstarfi sveitarfélaga.
Þjónusta sveitarfélaganna getur verið mismunandi eftir sveitarfélögum en fatlað fólk á lögbundinn rétt til þjónustu samkvæmt lögum um félagsþjónustu nr. 40/199. Reynist þörf fatlaðs einstaklings fyrir þjónustu eða stuðning skal veita meiri eða sérhæfðari en svo að henni verði fullnægt innan almennar þjónustu skal viðbótarþjónusta veitt samkvæmt lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/ 2018. Mikilvægt er að hafa í huga að sú þjónusta sem er veitt á grundvelli þeirra laga kemur til viðbótar þeirrar þjónustu sem veitt er á grundvelli annara laga en ekki í stað hennar. Þjónustan sem veitt er á grundvelli beggja laganna skal vera samþætt í þágu notanda.
Í öllum tilfellum er fólki sem leitar upplýsingar um þjónustu sveitarfélags ráðlagt að fara á vefsíðu sveitarfélagsins og leita upplýsinga þar eða hringja beint á skrifstofu viðkomandi sveitarfélags. Flest sveitafélaganna hafa á vefsíðu sinni þjónustugátt (mínar síður ) sem eru mínar síður íbúanna og er mikilvægt að skrá sig þar inn því þar inni má komast í samskipti við sveitaryfirvöld og þar liggja gjarnar umsóknareyðublöð og fleira.
Athugið að á nokkrum stöðum hér vantar upplýsingar um þjónustu í einstökum flokkum og er þá best að hafa beint samband við viðkomandi sveitarfélag með netpósti eða hringja beint á skrifstofu þess. Upplýsingar Þekkingarmiðstöðvarinnar á þjónustu sveitarfélaganna eru frekar almennar og byggjast á upplýsingum sem fengnar eru á vefsíðum sveitarfélaganna.
Fatlað fólk á rétt á liðveislu, sem hefur það markmið að styðja við viðkomandi, auka sjálfstæði og rjúfa félagslega einangrun. Til liðveislu getur talist að gefa fötluðum einstaklingi kost á að njóta tómstunda og menningar, en einnig getur hún falið í sér stuðning heima við daglegar athafnir sem og búðarferðir og annað slíkt.
Frekari liðveisla er viðbótarþjónusta við lögbundna almenna þjónustu sem fötluðu fólki stendur til boða, eins og heimaþjónustu, heimahjúkrun, kennslu og þjálfun og kemur einungis til álita ef sú þjónusta telst ekki nægjanleg.
Frekari liðveisla er margháttuð persónuleg aðstoð í daglegu lífi, sniðin að þörfum hvers og eins.
Frekari liðveisla er þjónusta fyrir þá sem búa sjálfstætt í íbúð, hafi þeir fullnýtt rétt sinn til heimaþjónustu sveitarfélags skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga. Einnig að veitt sé heimahjúkrun þar sem það á við. Frekari liðveisla er fyrst og fremst veitt á heimili þjónustunotandans.
Húsnæðisbætur eru mánaðarlegar greiðslur sem eru ætlaðar til að aðstoða þá sem leigja íbúðarhúsnæði, hvort sem er í félagslega kerfinu, námsgörðum eða á hinum almenna leigumarkaði.
Markmið laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur er að lækka húsnæðiskostnað efna minni leigjenda með greiðslu húsnæðisbóta vegna leigu á íbúðarhúsnæði og draga úr aðstöðumun á húsnæðismarkaðnum. Húsnæðis og mannvirkjastofnun annast framkvæmd húsnæðisbótakerfisins og er sótt um bæturnar á vefsíðu og eru þar um fyrirkomulagið. Kerfið er fjármagnað að fullu úr ríkissjóði
Fatlaðir einstaklingar sem ekki geta keyrt bíl, hafa ekki afnot af bíl né geta nýtt sér almenningssamgöngur eiga rétt á að nýta sér akstursþjónustu fyrir fatlaða til að komast á milli staða.
Til að eiga rétt á þjónustunni þarftu að eiga lögheimili í því sveitarfélagi sem þú sækir um aksturþjónustuna.
Fötluð börn geta fengið akstursþjónustu og sækja þá foreldrar eða forsjáraðilar um hana. Börn yngri en sex ára verða alltaf að vera í fylgd fullorðins einstaklings.
Sótt er um akstursþjónustu fyrir fatlaða inn á mínum síðum eða með því að senda umsókn á þjónustumiðstöð.
Félagsleg heimaþjónusta er veitt fötluðum einstaklingum sem búa í heimahúsum og geta ekki án stuðnings séð um heimilishald og athafnir daglegs lífs. Einnig er veittur félagslegur stuðningur. Undir félagslega heimaþjónustu falla því heimilisþrif, heimsendur matur o.fl.
Félagslegt húsnæði er ætlað þeim einstaklingum sem vegna lágra tekna geta ekki leigt á almennum markaði eða keypt sér húsnæði. Skoðaðar eru tekjur allra á heimilinu, fjöldi barna o.s.frv. þegar verið er að ákveða hvort einstaklingur eigi rétt á félagslegu leiguhúsnæði og hve stórri íbúð.
Einstaklingar sem ekki geta séð sér og fjölskyldu sinni farborða eiga rétt á fjárhagslegri aðstoð frá því sveitarfélagi sem viðkomandi er með lögheimili í. Sýna þarf fram á að tekjur séu lágar og nægi ekki fyrir fjölskylduna. Skoðaðar eru tekjur allra á heimilinu, fjöldi barna o.s.frv. þegar reiknað er út hvort viðkomandi eigi rétt á slíkum stuðningi.
Hugmyndafræðin um sjálfstætt líf
Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf. Hugmyndafræðin byggist á rétti fatlaðs fólks til að lifa sjálfstæðu lífi, hafa fulla stjórn á lífi sínu, taka eigin ákvarðanir og hafi rétt á því að búa í og taka þátt samfélaginu án aðgreiningar. Ennfremur að fatlað fólk geti tekið, óháð eðli og alvarleika skerðingar, eigin ákvarðanir, stjórnað eigin aðstoð og mótað eigin lífsstíl.
Markmið NPA er að við sem fatlað fólk getum lifað lífi okkar og haft sömu möguleika og ófatlað fólk. Einnig að við höfum hámarks stjórn á því að móta okkar eiginn lífsstíl. Nánar er fjallað um Sjálfstætt líf undir kaflanum um Velferð
Sveitarfélögum er heimilt að lækka eða fella niður fasteignaskatt sem tekjulitlum elli- og örorkulífeyrisþegum er gert að greiða samkvæmt 4. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga. Sveitarfélögum er skylt að setja sér reglur um beitingu heimildarinnar.
Öll þurfum við að takast á við ýmsar áskoranir í lífinu. Stundum er nauðsynlegt að fá ráðgjöf og stuðning til að mæta þeim. Félagsleg ráðgjöf hefur það markmið að hjálpa fólki til sjálfshjálpar með fjölbreyttum leiðum þannig að það geti sem best notið sín í samfélaginu.
Þú hefur samband við þjónustumiðstöð í þínu hverfi eða skrifstofur sveitafélags sem þú býrð í til að biðja um félagslega ráðgjöf. Ráðgjafi leiðbeinir þér varðandi umsóknir um ákveðna þjónustu sem hentar þínum þörfum og aðstoðar við gerð þeirra ef þörf er á.
Allt fólk 18 ára og eldra sem á lögheimili í Reykjavík getur leitað félagslegrar ráðgjafar sér að kostnaðarlausu á þjónustumiðstöðvum Reykjavíkurborgar.
Félagsleg ráðgjöf getur meðal annars falið í sér fjárhagsaðstoð, stuðning við húsnæðisleit, stuðning við virkni í atvinnuleysi og stuðning vegna skertrar starfsgetu.
Ráðgjafar á þjónustumiðstöðvum vinna með fólki og veita því upplýsingar um ýmsa þjónustu og vísa áfram í úrræði sem henta hverjum og einum.
Athugið að efni hér fyrir ofan er fengið af vef viðkomandi stofnana/fyrirtækja.
Hefur þú ábendingar eða frekari spurningar? Hafðu samband hér