Starfsemin

Bætt fyrirkomulag fyrir handhafa stæðiskorta í Reykjavík

Sjálfsbjörg Landssamband hreyfihamlaðra vill vekja athygli á nýju fyrirkomulagi fyrir handhafa stæðiskorta í bílastæðahúsum hjá Reykjavíkurborg.

Bílahús á vegum Bílastæðasjóðs Reykjavíkurborgar eru Stjörnuport, Vitatorg, Traðarkot, Ráðhúskjallari, Vesturgata og Kolaport.

Núverandi fyrirkomulag virkar þannig að þegar ekið er inn í bílahús eða um leið og búið er að leggja bifreið í stæði þá er hringt í síma 411 3403 eða notaður aðstoðarhnappur til að gefa upp bílnúmer sem staðsettir eru við innganga.

Ef P-kort hreyfihamlaðra er síðan á mælaborði við eftirlit starfsmanna Bílastæðasjóðs þá þarf ekki að fara í greiðsluvél heldur er nóg að aka að úthliði.