Sitjandi: Sigmar Ó. Maríusson, Hlaðgerður Snæbjörnsdóttir, Svanhildur Snæbjörnsdóttir, Ólöf Ríkarðsdóttir, Ásdís Ríkarðsdóttir og Kristín Jónsdóttir. Standandi: Þórdís Davíðsdóttir, Tryggvi Friðjónsson, Tómas Sigurðsson og Þórdís Richter. Mynd: Guðbjörg Kristín Eiríksdóttir
Stjórnendur Sjálfsbjargarheimilisins buðu fyrrverandi starfsmönnum ásamt gömlum sjálfsbjargarfélögum á jólahlaðborð í desember 2013. Góður rómur var gerður að veitingum Garðars Hallgrímssonar matreiðslumanns hjá Sjálfsbjargarheimilinu, og áttu núverandi og fyrrverandi starfsmenn svo og sjálfsbjargarfélagar notalega stund.