Starfsemin

Ný framkvæmdastjórn Sjálfsbjargar lsf.


Á 37. þingi Sjálfsbjargar landssambands fatlaðra var kjörin ný framkvæmdastjórn samtakanna fyrir árin 2014-2016. Á myndinni eru stjórnarmenn og varamenn ásamt starfsmönnum.

Efri röð: Bergur Þorri Benjamínsson, varaformaður og málefnafulltrúi á skrifstofu Sjálfsbjargar lsf., Margrét S. Jónsdóttir, varamaður og varaformaður Sjálfsbjargar á Suðurnesjum, María Óskarsdóttir, varamaður og formaður Sjálfsbjargar á Húsavík, Anna Torfadóttir, meðstjórnandi og varaformaður Sjálfsbjargar í Bolungarvík, Þórdís Richter, skrifstofustjóri, Guðbjörg Kristín Eiríksdóttir, fulltrúi og Tryggvi Friðjónsson, framkvæmdastjóri.

Neðri röð: Grétar Pétur Geirsson, formaður, Þorbera Fjölnisdóttir, gjaldkeri, Þuríður Harpa Sigurðardóttir, ritari og formaður Sjálfsbjargar í Skagafirði og Höskuldur Þór Höskuldsson, varamaður.

Á myndina vantar þau Maríu Richter, bókara og Andra Valgeirsson, fulltrúa.

Sjá nánar undir Um Sjálfsbjörg.