Starfsemin

Menningarnótt í Reykjavík - Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka

Menningarnótt í Reykjavík og Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka nálgast nú óðfluga. Sjálfsbjörg Landssamband hreyfihamlaðra er með nokkra hlaupara sem hlaupa fyrir félagið og safna áheitum. Það sem safnast í ár verður nýtt til kaupa á nýjum lyftustól í sundlaugina í Hátúni sem var opnuð í vor eftir lokun. Við hvetjum sem flesta til að heita á hlauparana okkar sem má sjá hér

Upplýsingar um aðgengi að viðburðum er að finna á heimasíðu Menningarnætur. Við hvetjum alla til að skoða dagskránna og njóta dagsins.