Þjónusta sveitarfélaga

Hrunamannahreppur (Flúðir)

Hrunamannahreppur

Flúðir

Akurgerði 6 | 845 Flúðir | sími 480 6600 | [email protected] | Vefsíða Hrunamannahrepps

Hrunamannahreppur ásamt Grímsnes- og Grafningshreppi, Flóahreppi, Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Bláskógarbyggð, hafa sameinast um að reka sameiginlega félagsþjónustu, Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings. Nánari upplýsingar um þjónustuna má fá á vef Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings.

Bergrisinn bs.

Sveitarfélögin Hveragerðisbær, Sveitarfélagið Ölfus, Grímsnes- og Grafningshreppur, Sveitarfélagið Árborg, Flóahreppur, Bláskógabyggð, Hrunamannahreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Ásahreppur, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra, Skaftárhreppur og Mýrdalshreppur reka byggðasamlagið Bergrisann, um málefni fatlaðs fólks. 

Aðildarsveitarfélögin fela byggðasamlaginu skipulag og framkvæmd þjónustu við fatlað fólk, sem á lögheimili í aðildarsveitarfélögunum, í samræmi við lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018.

Hlutverk byggðasamlagsins er að útfæra þjónustuna. Fjárhagslegri og faglegri umgjörð hennar er nánar lýst í samþykktum Bergrisans bs. 


Athugið að efni hér fyrir ofan er fengið af vef viðkomandi stofnana/fyrirtækja.

Hefur þú ábendingar eða frekari spurningar? Hafðu samband hér