Foreldrahlutverkið og ráðgjöf

Foreldrahlutverkið og ráðgjöf Foreldrahlutverkið er sennilega eitt það merkilegasta og ábyrgðarmesta hlutverk sem einstaklingum hlotnast á lífsleiðinni. Þetta er ekki einfalt hlutverk og er ekki meðfætt heldur en sumir hafa þetta svolítið í sér meðan aðrir þurfa að hafa nokkuð fyrir því að tileinka sér það. Og það getur verið flóknara þegar foreldri er t.d. hreyfihamlað eða barnið er með einhverjar sérþarfir. Hér að neðan komum við víða við þegar kemur að foreldrahlutverkinu.

Ráðgjöf/stuðningur

Hér fyrir neðan eru tenglar inn á síður þar sem bæði foreldrar og börn geta fengið ráðgjöf, stuðning, upplýsingar og ýmsa þjónustu.

Sjónarhóll

Háaleitisbraut 11-13 | 108 Reykjavík | 535 1900 | [email protected] | Vefsíða Sjónarhóls

Sjónarhóll er ráðgjafamiðstöð fyrir foreldra og aðstandendur fatlaðra og langveikra barna. Sjónarhóll var stofnað þegar ADHD samtökin, Landssamtökin Þroskahjálp, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra og Umhyggja, félag til stuðnings langveikum börnum, sameinuðu krafta sína til að geta mætt þörf foreldra fyrir stuðning og ráðgjöf.  Sjónarhóll er staðsettur að Háaleitisbraut 11-13 í Reykjavík. 

Ráðgjafa og greiningarmiðstöðin

Digranesvegur 5 | 200 Kópavogur | 510 8400 | Ráðgjafa og greiningarmiðstöðin

Ráðgjafa og greiningarmiðstöðin heyrir undir velferðarráðuneytið og starfar samkvæmt lögum nr. 83 frá 2003, fyrir allt landið. Markmiðið með starfseminni er að tryggja að börnum með alvarlegar þroskaraskanir eða fatlanir bjóðist greining, ráðgjöf og önnur úrræði sem miða að því að auka möguleika þeirra til sjálfstæðis á fullorðinsárum. Helstu fatlanir sem leiða til tilvísunar á Greiningarstöð eru þroskahömlun, einhverfurófsraskanir og hreyfihamlanir. Stofnunin veitir börnum með flóknar eða sjaldgæfar fatlanir eftirfylgd og ráðgjöf til lengri tíma.

Einstök börn

Háaleitisbraut 13 | 108 Reykjavík | 568 2661 | [email protected] | Vefsíða Einstakra barna

Einstök börn er stuðningsfélag barna og ungmenna með sjaldgæfa, jafnvel ógreinda sjúkdóma eða skerðingar. Ástæðan fyrir stofnun félagsins var sú að ákveðin börn í samfélaginu áttu ekki heima í neinum öðrum félagasamtökum og töldu þeir foreldrar sem hófu starfsemi Einstakra barna að þar gætu þau fundið sameiginlegan vettvang til að deila reynslu og vinna að bættum hag barna sinna.

Neistinn Styrktarfélag hjartveikra barna

Síðumúla 6 | 108 Reykjavík | 552 5744 / 899 1823 | [email protected] | Vefsíða Neistans

Neistinn miðlar fræðslu hvers kyns sem lýtur að hjartagöllum og meðferð þeirra t.d. með útgáfu fréttablaðs og upplýsingavef sínum, hjartagáttin.neistinn.is. Félagið heldur úti öflugu félagslífi, fjölskyldum hjartabarna til skemmtunar og stuðnings og unglingastarfið þykir einkar líflegt. Þá stendur Neistinn að baki Styrktarsjóði hjartveikra barna, sem styrkir hjartafjölskyldur fjárhagslega.

Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna

Hlíðasmára 14 | 201 Kópavogi | 588 7555 | [email protected] | Vefsíða Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna

Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna á tvær íbúðir í Reykjavík fyrir fjölskyldur barna af landsbyggðinni sem þurfa að dvelja í Reykjavík vegna læknismeðferðar barna sinna. SKB greiðir einnig ýmsa þjónustu fyrir skjólstæðinga sína og má þá helst nefna sálfræðiþjónustu en einnig listmeðferð og sjúkraþjálfun. SKB stendur fyrir ýmsu félagsstarfi fyrir félagsmenn sína s.s. mömmuhóp og unglingahóp.

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

Háaleitisbraut 13 | 108 Reykjavík | 535 0900 | [email protected] | Vefsíða Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra var stofnað árið 1952 og hefur frá upphafi verið frumkvöðull í þjónustu við fötluð börn og ungmenni. Meginmarkmið félagsins er að stuðla að aukinni orku, starfshæfni og velferð fólks með fötlun, einkum barna. Helstu verkefni félagsins eru:  rekstur Æfingastöðvarinnar að Háaleitisbraut og Strandgötu, Hafnarfirði og rekstur sumar- og vetrardvalar fyrir fötluð börn og ungmenni í Reykjadal Mosfellsbæ og sumardvalar fyrir fötluð börn og ungmenni í samstarfi við foreldrafélag Klettaskóla.

Systkinasmiðjan

Vefsíða Systkinasmiðjunnar

Systkinasmiðjan er fyrir krakka á aldrinum 8 - 14 ára sem eiga það sameiginlegt að eiga systkini með sérþarfir.

Umboðsmaður barna

Kringlunni 1, 5. hæð | 103 Reykjavík | 552 8999 | [email protected] | Vefsíða Umboðsmanns barna

Hlutverk umboðsmanns barna er skilgreint í lögum um embættið nr. 83/1994. Í 1. gr. kemur fram að það er hlutverk umboðsmanns barna að vinna að bættum hag barna og standa vörð um hagsmuni, þarfir og réttindi þeirra. Með börnum í lögum þessum er átt við einstaklinga undir 18 ára aldri. 
Embætti umboðsmanns barna var stofnað 1. janúar 1995.

Umhyggja, félag til stuðnings langveikum börnum

Háaleitisbraut 11-13 | 108 Reykjavík | 552 4242 | [email protected] | Vefsíða Umhyggju

Umhyggja er félag sem vinnur að bættum hag sjúkra barna og fjölskyldna þeirra. Í félaginu starfa foreldrar langveikra barna og fagfólk innan heilbrigðiskerfisins. Einnig eru félög og hópar foreldra langveikra barna í félaginu.

Hitt húsið, miðstöð ungs fólks

Rafstöðvarvegur 7-9  | 110 Reykjavík | 411 5500 | [email protected] | Vefsíða Hins Hússins

Hitt Húsið er miðstöð fyrir ungt fólk þar sem ungu fólki er veitt ýmis aðstoð og ráðgjöf, t.d. ráðgjöf til að koma hugmyndum sínum til framkvæmdar.

Rjóður, hvíldarheimili fyrir langveik börn

Kópavogsbraut 7|200 Kópavogur|543 9260 (deildarstjóri) 543 9261 (vakt)|[email protected]| Vefsíða Rjóðurs

Starfsemi Rjóðurs gefur börnum með ólæknandi sjúkdóma möguleika á að dvelja reglulega í öruggu umhverfi þar sem þau njóta umönnunar hjúkrunarmenntaðs fagfólks, en öryggi og velferð barnanna sem dvelja á heimilinu er lykilatriði. Markmið Rjóðurs er að gefa fjölskyldum langveikra barna tækifæri til að lifa eðlilegu lífi og gefa þeim hvíld frá mikilli umönnun og hjúkrun, að veita langveikum börnum umönnun og hjúkrun eftir þörfum hvers og eins og að gefa börnunum lífsgæði og afþreyingu eftir þörfum hvers og eins.

Barnaspítali Hringsins

Hringbraut | 101 Reykjavík | 543 3700 / 543 3701 | Vefsíða Barnaspítala Hringsins

Barnaspítali Hringsins stendur á horni Barónsstígs og Hringbrautar og snýr aðalinngangur að Hringbraut. Á Barnaspítala Hringsins er veitt fjölbreytt þjónusta við börn og unglinga að 18 ára aldri. Þverfagleg teymi, skipuð læknum, hjúkrunarfræðingum og öðru heilbrigðisstarfsfólki sinna skjólstæðingum ýmissa sérsviða.

Auðnast

8926379 / 8692348 |[email protected] |facebook síða Auðnast

Auðnast er fyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðgjafaþjónustu fyrir fjölskyldur og fyrirtæki í flóknu nútíma samfélagi

Heimili og skóli

5160100 |Suðurlandsbraut 24 - 2. hæð |[email protected] | vefsíða Heimili og skóla

Heimili og skóli bjóða upp á margvíslegar upplýsingar fyrir foreldra, ráðgjöf, tímarit og fyrirlestra fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla.  

Fræðsla og forvarnir

5111588 |Sigtún 42 |105 Reykjavík |[email protected] | vefsíða Fræðslu og forvarna

Heimili og skóli bjóða upp á margvíslegar upplýsingar fyrir foreldra, ráðgjöf, tímarit og fyrirlestra fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla.


Erlendar vefsíður

Mörg samtök fatlaðra foreldra erlendis halda úti vefsíðum þar sem fólk deilir reynslu sinni og gefur góð ráð. Á þessum síðum er oft hægt að finna ýmsar tæknilegar lausnir eða lausnir varðandi sérsmíði á barnahúsgögnum eða öðrum barnavörum og hver selur vörurnar.

Samtökin Disability, Pregnancy & Parenthood International

DPPI eða Disability, Pregnancy & Parenthood International  eru samtök sem starfrækt eru í Bretlandi. Þau eru ætluð til stuðnings fötluðum foreldrum, á meðgöngunni og eftir að barnið er fætt. Auk þess að fræða fagfólk sem vinnur með fötluðu fólki, til dæmis heilbrigðisstarfsfólk og félagsráðgjafa.

Disabled parents network

DPN eða Disabled Parents Network eru alþjóðleg samtök. Markmið þeirra er að veita upplýsingar, vera ráðgefandi og styðjandi við fatlaða foreldra og fjölskyldur þeirra. Samtökin hafa þá sýn að fatlað fólk eigi líkt og  aðrir að geta orðið foreldrar og upplifað fjölskyldulíf.

Directgov

Directgov eru með upplýsingar um opinbera þjónustu í Bretlandi, meðal annars fyrir fatlaða foreldra sem og fatlaða einstaklinga sem eru verðandi foreldrar. Getur gefið okkur alls konar hugmyndir. Sjá hér um Directgov                

The National Center for Parents with Disabilities

Þetta eru Amerísk samtök sem styðja við fatlaða foreldra og halda úti vefsíðu með margvíslegum fróðleik um málefnið. Sjáið vefsíðuna.

10 frábærir hlutir fyrir fatlaða foreldra

10 Amazing Products for Parents with Disability. Þetta er skemmtileg samantekt sem tiltekur 10 frábæra hluti sem komam sér vel fyrir fatlaða foreldra. Lýsir vörunum og tiltekur seljendur. Sjáið vefsíðuna.

Pregnacy birth&baby

1Áhugaverð vefsíða er fjallar um það að vera fatlað foreldi og hin marvíslegu verkefni sem blasa við æi daglegu lífi og fjölmörg verkefni er blasa við í daglegu foreldrahlutverkinu. Skoðið vefsíðuna

Rica

Rica eru samtök sem meðal annars gera rannsóknir og veita upplýsingar og gefa ráð um barnavörur til fatlaðra foreldra.             

nna. Þá eru hér upplýsingar um stjúpfjölskyldur og umhverfi þeirra.


Athugið að efni hér fyrir ofan er fengið af vef viðkomandi stofnana/fyrirtækja

Hefur þú ábendingar eða frekari spurningar? Hafðu samband hér