Önnur hagsmunasamtök
Háholti 14 | 270 Mosfellsbæ | 897 3119 | [email protected] | Vefsíða Beinverndar
Beinvernd eru landssamtök áhugafólks um beinþynningu, jafnt leikra sem lærðra. Samtökin voru stofnuð 12. mars 1997 í Reykjavík. Stjórn Beinverndar skipa átta manns auk tveggja varamanna.
Fyrirlestur og fræðsla sem Halldóra Björnsdóttir flutti hjá Þekkingarmiðstöðinni 18. oktbóber 2016 í tilefni af Beinverndadeginum. Hér má kynna sér glærur með gagnlegum upplýsingum frá fyrirlestrinum
Skúlagötu 19 | 101 Reykjavík | 414 9999 | [email protected] | Vefsíða FÍB
Tilgangur félagsins er að sameina bifreiðaeigendur á Íslandi. Einnig að efla umferðaröryggi, umferðarmenningu og gæta hagsmuna bifreiðaeigenda. Í lögum FÍB kemur fram að félagið skuli vera neytendasamtök bifreiðaeigenda og reka hagnýta ráðgjöf fyrir félagsmenn sína. Ennfremur að félagið skuli veita stjórnvöldum ráðgjöf og umsögn í öllum erindum er varða ökutæki og umferðarmálefni.
Ármúla 5 | 105 Reykjavík | [email protected] | Vefsíða Hagsmunasamtaka heimilanna
Markmið samtakanna er að beita sér fyrir lagabreytingum og /-eða lagasetningum til varnar og hagsbóta fyrir heimilin í landinu.
Suðurlandsbraut 24, 2. hæð | 108 Reykjavík | 516 0100| heimiliogskoli(hjá)heimiliogskoli.is | Vefsíða Heimili og skóla
Samtökin voru stofnuð 17. september 1992. Markmið þeirra er að stuðla að bættum uppeldis/-og menntunarskilyrðum barna og unglinga. Þúsundir foreldra eru félagar í Heimili og skóla og með stuðningi þeirra hefur tekist að byggja upp þjónustu við foreldra og félög þeirra.
Holtasmára 1 | 201 Kópavogi | 535 1800 | [email protected] | Vefsíða Hjartaverndar
Hjartavernd, landssamtök voru stofnuð árið 1964. Rannsóknarstöð Hjartaverndar hóf starfsemi sína þremur árum síðar eða árið 1967 með víðtækri faraldsfræðilegri rannsókn þar sem áhersla var lögð á að finna helstu áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma meðal Íslendinga.
Lágmúla 9 | 108 Reykjavík | 414 1550 | [email protected] | Vefsíða Hugarafls
Samtökin Hugarafl voru stofnuð í júní 2003 af notendum í bata, sem átt hafa við geðræna erfiðleika að stríða og iðjuþjálfum með víðtæka reynslu af geðheilbrigðismálum.
Skógarhlíð 8 | 105 Reykjavík | 540 1900 | [email protected] | Vefsíða Krabbameinsfélagsins
Á Leitarstöðinni eru gerðar legháls- og brjóstaskoðanir; mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga frá kl. 8:00 til kl.15:30. Tímapantanir á vef í síma 540 1919 og á netinu. Hægt er að senda fyrirspurnir á [email protected]
Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þeirra. Þar fær fólk sérhæfða endurhæfingu- og stuðning. Fagfólk aðstoðar við að byggja upp líkamlegt og andlegt þrek, auk þess að fær fólk stuðning við að setja sér markmið sem auka daglega virkni og hafa þannig áhrif á lífsgæði almennt.
Ráðgjafaþjónusta Krabbameinsfélagsins býður upp fræðslu, upplýsingar, ráðgjöf og stuðning við fólk sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur þess.
Aðildarfélög Krabbameinsfélagsins má finna um land.
Háaleitisbraut 13 | 108 Reykjavík | 588 9390 | [email protected] | Vefsíða Þroskahjálpar
Landssamtökin Þroskahjálp voru stofnuð haustið 1976 í því skyni að sameina þau félög, sem vinna að málefnum fatlaðra, með það að markmiði að tryggja þeim fullt jafnrétti á við aðra þjóðfélagsþegna. Aðildarfélög Þroskahjálpar eru 22 talsins og eru þau foreldra- og styrktarfélög, svo og fagfélög fólks sem hefur sérhæft sig í þjálfun og þjónustu við fatlaða.
Suðurgata 3| 101 Reykjavík|Sími 552-7878 | Netfang: skrifstofa(hja)samtokin78.is | Vefsíða Samtakanna 78
Samtökin 78 eru hagsmuna- og baráttusamtök samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transgender fólks á Íslandi. Markmið félagsins er að lesbíur, hommar, tvíkynhneigðir og transgender fólk verði sýnilegt og viðurkennt og njóti fyllstu réttinda í íslensku samfélagi.
Athugið að efni hér fyrir ofan er fengið af vef viðkomandi samtaka
Hefur þú ábendingar eða frekari spurningar? Hafðu samband hér