Ráðgjöf og fræðsla

Félagsfólki Sjálfsbjargar býðst sálfræðimeðferð, félagsráðgjöf, fjölskyldumeðferðir og fræðslu og sáttamiðlun hjá Samskiptamiðstöðinni, sér að kostnaðarlausu.

Góð andleg heilsa og líðan er mikilvæg í lífi hvers einstaklings. Líkamleg áföll og veikindi geta valdið varanlegum breytingum á daglegu lífi og þá er mikilvægt að leita sér aðstoðar.

Viðtölin fara fram í Samskiptastöðinni en einnig eru fjarviðtöl í boði.

Hægt er að sækja um ráðgjöf hér á vefnum með því að smella á hnappinn “Sækja um ráðgjöf” hér fyrir ofan og fylla út umsóknarform. 

Einnig má óska eftir tíma í tölvupósti: samskiptastodin@samskiptastodin.is
eða hringja í síma 419 0500

Beiðni um tíma og frekari spurningar má senda á sirry@sjalfsbjorg.is