Sjálfsbjörg býður félögum sínum frí stuðningsviðtöl (stað- eða fjarviðtöl) hjá Samskiptastöðinni. Hægt er að fá viðtal vegna sálfræðimeðferðar, félagsráðgjafar, fjölskyldumeðferðar, fræðslu og sáttamiðlunar.
Óskið eftir tíma með því að senda tölvupóst á samskiptastodin@samskiptastodin.is eða hringja í síma 419-0500.
Einnig er hægt að senda tölvupóst á sirry@sjalfsbjorg.is með beiðni um tíma eða frekari spurningar.
Viðtölin standa félagsmönnum Sjálfsbjargar til boða. Til að gerast félagsmaður er hægt að hafa samband við eitt af aðildarfélögum Sjálfsbjargar sem eru staðsett víða á Íslandi. Upplýsingar um aðildarfélögin er að finn hér
Viðtölin fara fram á Samskiptastöðinni
–
Margrét Vignisdóttir

Sálfræðingur
margret@samskiptastodin.is
Greining og meðferð á sálrænum vanda hjá fullorðnum og ungmennum eldri en 18 ára.
- Þunglyndi
- Kvíði
- Sorg
- Lágt sjálfsmat
- Féglagsfælni
- Streita og álag
Margrét Vignisdóttir útskrifaðist með MSc gráðu í klínískri sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík vorið 2025 og hlaut starfsleyfi sem sálfræðingur sama ár. Hún vinnur með einstaklingum 18 ára og eldri, og veitir meðferð við vanda á borð við þunglyndi, kvíða, streitu, sorg og lágu sjálfsmati.
Margrét styðst við gagnreyndar aðferðir í sinni meðferð með áherslu á hugræna atferlismeðferð (HAM). Hún öðlaðist fjölbreytta reynslu í starfsnámi sínu á Samskiptastöðinni og á fíknigeðdeild Landspítalans.
Þar fékk hún þjálfun í greiningu og meðferð við margvíslegum sálrænum vanda og neysluvanda hjá fullorðnum. Á námstímanum leiddi hún einnig námskeiðið „HAM við streitu“ á heilsugæslunni.
Í meistaraverkefni sínu skoðaði Margrét hvernig atferlisvirkjun getur gagnast einstaklingum sem glíma við þunglyndi og eru jafnframt greindir með geðhvörf.
Hún hefur sérstakan áhuga á meðferð sem stuðlar að aukinni virkni og bættum lífsgæðum.
Elín Broddadóttir

Sálfræðingur – ungmenni og fullorðnir
elinb@samskiptastodin.is
Elín útskrifaðist með BS í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2016, MSc gráðu í klínískri sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2024 og hlaut í kjölfarið starfsréttindi sem klínískur sálfræðingur. Elín leggur áherslu á hugræna atferlismeðferð (HAM) og sinnir málum á borð við kvíða, þunglyndi, þrálát líkamleg einkenni, lágt sjálfsmat og áföll ásamt öðrum tilfinningalegum vanda. Í námi sínu öðlaðist hún fjölbreytta reynslu á greiningar- og meðferðarvinnu bæði með unglingum og fullorðnum. Hún var í starfsnámi hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Geðheilsumiðstöð barna og geðrofs- og samfélagsgeðteymi Landspítala.
Meistaraverkefni hennar fól í sér að árangursmeta hugræna atferlismeðferð í hóp við þrálátum líkamlegum einkennum og starfar hún enn við rannsóknir samhliða starfi sínu hjá Samskiptastöðinni. Undanfarin ár hefur Elín starfað við rannsóknir en hún hefur einnig lokið meistaranámi á félagsvísindasviði með áherslu á lýðheilsu og hnattræna heilsu. Elín hefur mikinn áhuga á heilsu og velferð barna og starfaði lengi í æskulýðsstarfi með börnum og unglingum á öllum aldri.