Hjálparsjóðurinn er á vegum Sjálfsbjargar á Akureyri og nágrenni. Styrkþegar skulu vera félagsmenn þar og hafa greitt félagsgjöld til félagsins.
Sjóðurinn veitir styrki til:
- háskólanáms.
- aðlögunar á umhverfi og tækjakaupa vegna atvinnu, náms , tómstunda eða til boðskipta.
- ferðalaga innanlands eða erlendis vegna aukakostnaðar
- annarra þeirra verkefna sem stjórn sjóðsins metur hæf svo sem til nýsköpunar-og sprotaverkefna.
Umsóknum skal skilað til stjórnar sjóðsins á þar til gerðum eyðublöðum. Öllum umsóknum skal svarað skriflega. Úthlutun fer fram á degi fatlaðra þann 03. desember ár hvert.
Umsókn til Hjálparsjóðsins