Íbúðir
Hér er yfirlit yfir leiguíbúðir félagasamtaka, kaupleiguíbúðir, skammtímaleigu, endurhæfingaríbúðir og búsetu með stuðningi.
Blindrafélagið
Í húsi Blindrafélagsins að Hamrahlíð 17 eru um 20 leiguíbúðir sem leigðar eru út til félagsmanna í langtímaleigu. Auk þess eru tvær gestaíbúðir og eitt gestaherbergi leigð út til skamms tíma í senn til félagsmanna og aðstandenda þeirra. Sjá nánar á vefsíðu Blindrafélagsins
Brynja hússjóður Öryrkjabandalags Íslands
Á vefsíðu Brynju kemur fram að hlutverk hans er að eiga og reka íbúðir fyrir öryrkja. Sjóðurinn kaupir og byggir leiguíbúðir. Brynja á ríflega 800 íbúðir sem nær eingöngu eru ætlaðar þeim sem hafa 75% örorkumat.
Nánar á vefsíðu Brynju
SEM Samtök endurhæfðra mænuskaddaðra
Markmið SEM samtakanna eru að byggja og reka félagslegt íbúðarhúsnæði sem taki tillit til sérþarfa hreyfihamlaðra, handa félögum SEM. Einnig að safna, taka við og ráðstafa fé til byggingar og reksturs félagslegra íbúða, sameignar íbúðarhúsa, nauðsynlegrar aðstoðar við íbúana eða annarra skyldrar þjónustustarfsemi.
Nánar á vefsíðu SEM samtakanna
Félagslegt húsnæði á vegum sveitarfélaga
Mörg sveitarfélög eiga félagslegt leiguhúsnæði og/eða þjónustuíbúðir. Nánari upplýsingar um umsóknarferli um félagslegt leiguhúsnæði má sjá á heimasíðum sveitafélaganna.
Búseti
Með búseturétti hjá Búseta lágmarkar íbúi fjárbindingu sína í fasteign og kaupir búseturétt sem tryggir honum öryggi til búsetu eins lengi og honum hugnast og fær þjónustu er tengist viðhaldi fasteignar. Ekki er hægt að segja viðkomandi upp húsnæðinu svo framarlega sem staðið er í skilum með mánaðarlegt gjald og íbúi hlýtur reglum félagsins. Nánar á vefsíðu Búseta