Að hlaða Viðburðir

Skiltagerðarfundur Aðgengisstrolls

3. september | 15:00 - 17:00

Skiltagerðarfundur fyrir aðgengisstroll verður,  fimmtudaginn 3. september kl. 15:00-17:00 til undirbúnings aðgengisstrolli þriðjudaginn 8. september.

Skiltagerðin fer fram í húsnæði NPA miðstöðvarinnar og verður snarl, kaffi og gos í boði. Gott aðgengi er að húsnæðinu.

Skráning á viðburðinn fer fram á vef NPA miðstöðvarinnar [smella hér]

Skellum í góða samverustund og kveikjum á baráttuandanum! Það eru grundvallarmannréttindi að hafa aðgengi til jafns við aðra.

CP félagið, Gigtarfélag Íslands, MND á Íslandi, MS félag Íslands, NPA miðstöðin, SEM samtökin og Sjálfsbjörg standa fyrir aðgengisstrollinu.

NPA miðstöðin

Urðarhvarf 8
Kópavogur,