Aðgengisstroll 3
Þriðjudaginn 8. september, ætlum við að fjölmenna í hjólastólunum okkar, með göngustafina, hækjurnar, göngugrindur, skutlurnar og önnur hjálpartæki, í strollagöngu til að vekja athygli á aðgengi og málefnum hreyfihamlaðra. Mæting er á Austurvöll kl. 12:45 Þingsetning kl. 13:30 Aðgengi að samfélagi er sjálfsögð krafa okkar!