Skiltagerðarfundur fyrir aðgengisstroll verður, fimmtudaginn 3. september kl. 15:00-17:00 til undirbúnings aðgengisstrolli þriðjudaginn 8. september.
Skiltagerðin fer fram í húsnæði NPA miðstöðvarinnar og verður snarl, kaffi og gos í boði. Gott aðgengi er að húsnæðinu.
Skráning á viðburðinn fer fram á vef NPA miðstöðvarinnar [smella hér]
Skellum í góða samverustund og kveikjum á baráttuandanum! Það eru grundvallarmannréttindi að hafa aðgengi til jafns við aðra.
CP félagið, Gigtarfélag Íslands, MND á Íslandi, MS félag Íslands, NPA miðstöðin, SEM samtökin og Sjálfsbjörg standa fyrir aðgengisstrollinu.
