Námskeiðslýsing:
Námskeiðið Leikur og fjör örvar leikgleði og sjálfstraust. Farið verður í framkomu og tjáningaræfingar út frá aðferðum leiklistarinnar. Allt er unnið í skemmtilegri senuvinnu sem er einstaklingsmiðuð: Unnar eru senur sem henta hverjum og einum. En það hjálpar við vellíðan og gleði sem er lykillinn að því að uppgötva eigin tjáningarmöguleika í styrkjandi umhverfi.
Kynning
Sigrún Sól er mörgum halafélögum kunn þar sem hún leikstýrði sýningunni Þjóðarsálin árið 2006 sem sýnd var í reiðhöll Gusts. Við erum því afar glöð að fá hana til liðs við okkur og aldrei að vita hvert námskeið í leiklist og framkomu leiðir þig/okkur.
Sigrún er menntuð sem leikari, leikstjóri og leiklistarkennari, með meistaragráðu í hagnýtri menningarmiðlun, auk sérhæfðs náms í raddþjálfun. Hún býr yfir áralangri reynslu af þjálfun í leiklist, raddbeitingu og framkomu. Í starfi sínu hefur Sigrún meðal annars þjálfað stjórnmálafólk, stjórnendur og viðskiptafólk, fræðimenn og annað fagfólk í framkomu og tjáningu. Undanfarin sex ár hefur hún jafnframt starfað við leikaraval í gegnum fyrirtæki sitt Iceland Casting og haldið sérhæfð námskeið fyrir leikara í senuvinnu fyrir kvikmyndir.