Viðburðir
-
-
-
Opið hús hjá Sjálfsbjörg á Suðurnesjum
Sjálfsbjörg á Suðurnesjum Iðavellir 9, ReykjanesbærSjálfsbjörg á Suðurnesjum ætlar að hafa opið hús á Iðavöllum 9 fimmtudaginn 3 september frá 13:00 til 16:00 þar sem verður kynning á starfseminni. Ýmislegt verður að sjá, t.d. póstulín málun, kortagerð, silki málun og margt fleira. Heitt verður á könnunni. Öll velkomin.
-
Skiltagerðarfundur Aðgengisstrolls
NPA miðstöðin Urðarhvarf 8, KópavogurSkiltagerðarfundur fyrir aðgengisstroll verður, fimmtudaginn 3. september kl. 15:00-17:00 til undirbúnings aðgengisstrolli þriðjudaginn 8. september. Skiltagerðin fer fram í húsnæði NPA miðstöðvarinnar og verður snarl, kaffi og gos í boði. Gott aðgengi er að húsnæðinu. Skráning á viðburðinn fer fram á vef NPA miðstöðvarinnar Skellum í góða samverustund og kveikjum á baráttuandanum! Það eru grundvallarmannréttindi […]
-
Aðgengisstroll 3
Austurvöllur AusturvöllurÞriðjudaginn 8. september, ætlum við að fjölmenna í hjólastólunum okkar, með göngustafina, hækjurnar, göngugrindur, skutlurnar og önnur hjálpartæki, í strollagöngu til að vekja athygli á aðgengi og málefnum hreyfihamlaðra. Mæting er á Austurvöll kl. 12:45 Þingsetning kl. 13:30 Aðgengi að samfélagi er sjálfsögð krafa okkar!
-
Grænmetismarkaður Sjálfsbjargar á Höfuðborgarsvæðinu
Kriki við Elliðavatn Vatnsendablettur 19a, KópavogurGrænmetismarkaður í Krika við Elliðavatn í KópavogiSunnudaginn 13. September 2026, frá klukkan 13:00 til 17:00 Brakandi nýtt og ferskt grænmeti beint frá býli.Einnig verður hægt að fá reyktan og grafinn villtan lax á meðan birgðir endast.Ágóði af sölu rennur til Sjálfsbjargar félags hreyfihamlaðra á höfuðborgarsvæðinu til rekstrar sumarhússins Krika við Elliðavatn, Vatnsendabletti 19a, 203 Kópavogi. […]