Vefsíður tengdar ferðalögum innanlands
Ferðaskrifstofur
Eftirfarandi ferðaskrifstofur gera sérstaklega ráð fyrir fötluðum ferðamönnum – ef vitað er um fleiri ferðaskrifstofur vinsamlegast komið þeim upplýsingum til Þekkingarmiðstöðvarinnar.
Iceland Unlimited
Iceland Unlimited skipuleggur ferðir fyrir hreyfihamlað fólk, þar sem hugað er að aðgengi t.d. á þeim stöðum sem fólk vill fara á. Hægt er að ferðast um landið, njóta náttúrunnar og sinna ákveðnum áhugamálum eins og að veiða, fara á snjósleða, á fjórhjól, fara í jeppaferðir, sjá norðurljósin o.s.frv. Upplýsingar á vefsíðu þeirra.
Ferðamálastofa
Ferðamálastofa sér um útgáfu leyfa í ferðamannaiðnaðinum, skráningu á starfsemi og eftirlit með að skilyrðum fyrir þeim sé fullnægt. Hún sér þannig um framkvæmd markaðrar ferðamálastefnu, samræmingu umhverfis- og fræðslumála, miðlun upplýsinga, svæðisbundna þróun og alþjóðlegt samstarf.
Ferðamálastofa gaf út flokkunarviðmið, Ferðaþjónusta fyrir alla, um aðgengi að áningar- og útivistarsvæðum á Íslandi í maí 2007. Þó svo að byggingarreglugerð hafi breyst síðan, er margt hægt að nota í þessum bæklingi.
Stofnanir sem sinna ferðamálum
Við notum vafrakökur til að tryggja virkni vefsins og, með þínu samþykki, til að mæla notkun og bæta þjónustu okkar. Þú getur samþykkt allar vafrakökur, hafnað valfrjálsum vafrakökum eða valið nánar hvaða vafrakökur þú samþykkir.