Ein aðaltekjulind Sjálfsbjargar eru happdrætti samtakanna. Árlega erum við með tvö happdrætti, annað í byrjun sumars sem dregið er í á Jónsmessunni 24. júní, hitt er í lok árs og dregið 31. desember.
Happdrættismiðarnir eru sendir tilteknum markhópi hverju sinni. Jafnframt fara miðarnir inn í heimabanka viðtakenda sem valkrafa sem gerir þeim unnt að greiða miðann í gegnum heimabankann. Kröfunúmer er miðanúmer viðkomandi aðila. Afrakstur af sölu happdrættismiðanna er notað í málefnastarf Sjálfsbjargar.
Sjálfsbjörg þakkar þeim hafa keypt happdrættismiða okkar veittan stuðning og góðan hug.
Handhafar vinningsmiða eru vinsamlega beðnir um að framvísa þeim á skrifstofu Sjálfsbjargar landssambands hreyfihamlaðra að Hátúni 12 vesturinngangi (inngangur 4), 105 Reykjavík. Opið milli kl. 10:00 og 14:00 alla virka daga. Sími: 550 0360.
Áramótahappdrætti Sjálfsbjargar 2025
dregið út þann 31. desember 2025 [sækja vinningaskrá]

Jónsmessuhappdrætti Sjálfsbjargar 2025
dregið út þann 24. júní 2025 [sækja vinningaskrá]
