Menning – Tónlist og leikhús
Hér söfnum við upplýsingum um aðgengi á ýmsum menningarstöðum. Ef þú hefur upplifað gott aðgengi á einhverjum menningarstöðum víðs vegar um landið, sem ekki eru að finna hér á síðunni, endilega láttu okkur vita.
Borgarleikhúsið
Vefsíða Borgarleikhússins
Hjólastólanotendur fá afslátt af miðaverði líkt og aðrir öryrkjar. Gott aðgengi er fyrir hjólastóla inn í leikhúsið og innan þess. Það eru hjólastólastæði í Stóra salnum. Á Litla sviðinu eru margar tröppur en engin handrið. Á Nýja sviðinu er sviðsmyndin og sætaskipan. Það þarf að láta vita þegar miðinn er pantaður ef leikhúsgestur notar hjólastól. Salerni er fyrir hjólastólanotendur. Tvenn P-bílastæði eru fyrir utan (upplýsingar frá fötluðum leikhúsgest).
Menningarfélag Akureyrar (áður Leikfélag Akureyrar)
Vefsíða Menningarfélags Akureyrar
Menningarfélag Akureyrar er með sýningar á tveimur stöðum: Samkomuhúsinu og Hofi
Hof – Menningarhús
Mjög gott aðgengi er í Hofi og eru allar helstu upplýsingar um það á heimasíðu Menningarfélagsins hér.
Samkonuhúsið Akureyri
Samkomuhúsið á Akureyri er friðað, en þó er hægt að hringja á undan sér á viðburði til að óska eftir aðgengi. Hægt er að láta taka sæti frá fyrir hjólastól og setja ramp út svo að fólk í hjólastól komist inn.
Tjarnarbíó
Tjarnarbíó er aðgengilegt fyrir hjólastólanotendur. Rampur er frá götu upp á gangstétt og gengið er beint inn frá gangstéttinni. Hurðir eru breiðar, einnig hurð inn í salinn og í salnum er svæði þar sem gert er ráð fyrir einstaklingum í hjólastólum. Aðgengileg salernisaðstaða er einnig til staðar. Þegar miðar eru pantaðir þarf að taka fram í tölvupósti á ef sýningargestur notar hjólastól. Miðaverð er misjafnt eftir því hverjir halda hvern viðburð og því fer eftir hverjum og einum viðburði hvort öryrkjar fái afslátt á sýningar í Tjarnarbíói eða ekki.
Þjóðleikhúsið
Aðgengi hefur verið bætt í Þjóðleikhúsinu og má finna allar nýjustu upplýsingar um það hér.
Kvikmyndahús
Eftirfarandi upplýsingar um aðgengi í kvikmyndahúsum eru fengnar frá hreyfihömluðum einstaklingum og fyrirtækjunum sjálfum.
Smárabíó
Fyrir utan Smáralind eru mörg sérmerkt stæði fyrir fatlað fólk. Aðgengi í miðasölu og upp í Smárabíó er gott, lyfta og rúllustigi. Fjögur stór salerni eru fyrir fatlaða, en þungar pumpuhurðar. Í öllum sölum eru hjólastólastæði, þó mismörg.
Kringlubíó
Vefsíða Sambíóa
Mörg sérmerkt stæði fyrir utan húsið, gott aðgengi inni í húsinu. Eitt salerni sérmerkt fyrir fatlaða og á kvennasalerninu er eitt salerni sem er rýmra en hin (myndi henta hreyfihömluðum sem geta gengið eða nota hækjur eða göngugrindur, ekki þó nægt pláss fyrir hjólastóla). Hjólastólastæði eru í tveimur sölum, sal 1 og 2, en í sal 3 getur hjólastóll verið við hliðina á sætaröðinni þar sem gengið er inn í salinn.
Háskólabíó
Vefsíða Háskólabíós
Tvö sérmerkt bílastæði fyrir fatlað fólk eru fyrir utan húsið, rétt við innganginn. Miðasala er á fyrstu hæð. Hjólastólastæði er öllum sölum uppi en ekki í salnum á neðri hæð. Fyrir þá sem ekki geta gengið stiga þarf að hafa þó nokkuð fyrir því að komast í lyftu niður á neðri hæð þar sem hún er stýrð með lykli sem starfsfólk geymir. Aðeins eitt salerni er fyrir fatlað fólk, staðsett hinu megin í húsinu. Fyrir þá sem eru lítið hreyfihamlaðir, geta gengið niður tröppur og þurfa ekki á rúmgóðu salerni að halda er það minni fyrirhöfn.
Sambíóin Egilshöll
Vefsíða Sambíóa
Gott aðgengi og aðstaða utandyra sem innan. Fyrir utan eru sérmerkt stæði fyrir fatlað fólk. Miðasala er á fyrstu hæð og bíósalirnir á annarri hæð, lyfta og rúllustigi milli hæða. Salerni fyrir fatlaða og hjólastólastæði í sölunum.
Bíó Paradís
Vefsíða Bíó Paradísar
Á heimasíðu bíósins er að finna greinagóðar upplýsingar um aðgengi.
Tónlistarsalir
Harpa
Gott aðgengi, nokkur salerni eru í húsinu fyrir fatlaða og lyftur á milli hæða. Sérmerkt bílastæði eru í bílakjallara.
Aðgengi í sölum er misjafnt, í nokkrum eru lausir stólar og þar er auðvelt að sitja í hjólastól við enda raðar eða einfaldlega taka einn stól í burtu og leggja hjólastólnum þar. Í Eldborgarsal, aðalsal Hörpu, eru 4 gjaldfrjáls stæði fyrir hjólastóla, við enda B og D stúku. Einnig er hægt að taka út sæti fyrir hjólastóla víða um salinn fyrir gesti sem kaupa miða. Athugið að hafa samband tímanlega við miðasölu, þ.e. áður en mætt er á staðinn, ef þörf er á stæðum fyrir hjólastóla.
Fólk sem notar heyrnartæki hefur verulegt gagn af tónmöskvakerfi eða sambærilegu kerfi sem er notað til að draga úr aukahljóðum og bæta hlustun. Í Hörpu er hægt að fá afnot af slíkum búnaði, athugið að láta vita í miðasölu þegar miðar eru keyptir ef óskað er eftir afnotum af búnaðinum.
Ef þörf er á aðstoð við blinda og sjónskerta eru gestir vinsamlegast beðnir um að láta vita af því tímanlega í miðasölu.
Hreyfihamlaðir hafa aðgang að fríum stæðum í bílakjallara. Green Parking er rekstraraðili í Hörpu og sér um rekstur bílastæða fyrir hönd eigenda auk þjónustu við bílaeigendur. Á vefsíðu þeirra má fá allar upplýsingar um hvernig hægt er að nýta sérmerktu stæðin í Hörpu.
Salurinn
Vefsíða Salarins (Opnast í nýjum vafraglugga)
Á vefsíðu Salarins eru greinagóðar upplýsingar um aðgengi sem finna má hér.
Söfn
Borgarsögusafn Reykjavíkur
Facebooksíða Borgarsögusafns | Vefsíða Borgarsögusafns
Borgarsögusafn Reykjavíkur tók til starfa þann 1. júní 2014 en undir það heyra: Árbæjarsafn, Aðalstræti, Sjóminjasafnið í Reykjavík, Ljósmyndasafn Reykjavíkur og Viðey. Á heimasíðu safnsins er sérstök síða um aðgengi þar sem nálgast má allar upplýsingar um aðgengi á hverjum stað fyrir sig. Þá er einnig ókeypis aðgangur fyrir öryrkja gegn framvísun örorokuskírteinis.
Við notum vafrakökur til að tryggja virkni vefsins og, með þínu samþykki, til að mæla notkun og bæta þjónustu okkar. Þú getur samþykkt allar vafrakökur, hafnað valfrjálsum vafrakökum eða valið nánar hvaða vafrakökur þú samþykkir.