Aðstoð við kosningu
Þeir einstaklingar sem þurfa aðstoð við að fara í kjörklefa og árita kjörseðla geta fengið aðstoð við slíkt samkvæmt ákveðnu verklagi. Aðgengi hreyfihamlaðra er tryggt á öllum kjörstöðum auk þess sem hjólastólar ættu að vera til taks á öllum stöðum. Hægt er að lesa nánar um það á vefsíðunni Iceland.is
Að fá akstur og aðstoð á kjörstað
Flest framboð bjóða upp á akstur á kjörstað. Best er að hafa samband við kosningaskrifstofu hvers frambjóðanda/flokks í kjördæmi viðkomandi til að óska eftir keyrslu. Þá er aðgengi hreyfihamlaðra tryggt á öllum kjörstöðum auk .ess sem hjólastólar ættu að vera til taks á öllum stöðum.