Að hlaða Viðburðir

Halaleikhópurinn :: Leikur, framkoma og fjör í Halanum

26. október | 00:00 - 7. nóvember | 00:00

Námskeið í leiklist og framkomu með Sigrúnu Sól Ólafsdóttur.

Engin krafa er um að fólk hafi tekið þátt áður í leiklist.

Verð: 12.000 kr.  En 5000 fyrir félaga í Halaleikhópnum svo það margborgar sig að gerast félagi.

Áhugasamir eru beðnir að skrá sig fyrir 21. október með því að senda tölvupóst á netfangið halaleikhopurinn@gmail.com

Námskeðið er sex skipti á tveim vikum sjá dagsetningu og tímasetningu hér undir:

mán. 26.10. kl. 17-20.

mið. 28. 10.  kl. 16-19.

lau. 31.10.   kl.13-16.

mán. 02. 11. kl. 17-20.

mið. 04. 11.  kl. 17-20.

lau. 07. 11.  kl. 13-16.

Námskeiðslýsing:

Námskeiðið Leikur og fjör örvar leikgleði og sjálfstraust. Farið verður í framkomu og tjáningaræfingar út frá aðferðum leiklistarinnar.  Allt er unnið í skemmtilegri senuvinnu sem er einstaklingsmiðuð:  Unnar eru senur sem henta hverjum og einum. En það hjálpar við  vellíðan og gleði sem er lykillinn að því að uppgötva eigin tjáningarmöguleika  í styrkjandi umhverfi.

Kynning

Sigrún Sól er mörgum halafélögum kunn þar sem hún leikstýrði sýningunni Þjóðarsálin árið 2006 sem sýnd var í reiðhöll Gusts. Við erum því afar glöð að fá hana til liðs við okkur og aldrei að vita hvert námskeið í leiklist og framkomu leiðir þig/okkur.

Sigrún er menntuð sem leikari, leikstjóri og leiklistarkennari, með meistaragráðu í hagnýtri menningarmiðlun, auk sérhæfðs náms í raddþjálfun.  Hún býr yfir áralangri reynslu af þjálfun í leiklist, raddbeitingu og framkomu. Í starfi sínu hefur Sigrún meðal annars þjálfað stjórnmálafólk, stjórnendur og viðskiptafólk, fræðimenn og annað fagfólk í framkomu og tjáningu.  Undanfarin sex ár hefur hún jafnframt starfað við leikaraval í gegnum fyrirtæki sitt Iceland Casting og haldið sérhæfð námskeið fyrir leikara í senuvinnu fyrir kvikmyndir.