Námskeið í leiklist og framkomu með Sigrúnu Sól Ólafsdóttur.
Engin krafa er um að fólk hafi tekið þátt áður í leiklist.
Verð: 12.000 kr. En 5000 fyrir félaga í Halaleikhópnum svo það margborgar sig að gerast félagi.
Áhugasamir eru beðnir að skrá sig fyrir 21. október með því að senda tölvupóst á netfangið halaleikhopurinn@gmail.com
Námskeðið er sex skipti á tveim vikum sjá dagsetningu og tímasetningu hér undir:
mán. 26.10. kl. 17-20.
mið. 28. 10. kl. 16-19.
lau. 31.10. kl.13-16.
mán. 02. 11. kl. 17-20.
mið. 04. 11. kl. 17-20.
lau. 07. 11. kl. 13-16.
Course description:
Námskeiðið Leikur og fjör örvar leikgleði og sjálfstraust. Farið verður í framkomu og tjáningaræfingar út frá aðferðum leiklistarinnar. Allt er unnið í skemmtilegri senuvinnu sem er einstaklingsmiðuð: Unnar eru senur sem henta hverjum og einum. En það hjálpar við vellíðan og gleði sem er lykillinn að því að uppgötva eigin tjáningarmöguleika í styrkjandi umhverfi.
Introduction
Sigrún Sól is well-known to many members, as she directed the 2006 production 'National Soul,' which was performed in Gust's riding hall. We are therefore very happy to have her join us, and who knows where a course in acting and public speaking will lead you or us.
Sigrún er menntuð sem leikari, leikstjóri og leiklistarkennari, með meistaragráðu í hagnýtri menningarmiðlun, auk sérhæfðs náms í raddþjálfun. Hún býr yfir áralangri reynslu af þjálfun í leiklist, raddbeitingu og framkomu. Í starfi sínu hefur Sigrún meðal annars þjálfað stjórnmálafólk, stjórnendur og viðskiptafólk, fræðimenn og annað fagfólk í framkomu og tjáningu. Undanfarin sex ár hefur hún jafnframt starfað við leikaraval í gegnum fyrirtæki sitt Iceland Casting og haldið sérhæfð námskeið fyrir leikara í senuvinnu fyrir kvikmyndir.
