Við erum í óða önn að búa okkur undir Reykjavíkurmaraþonið. Að þessu sinni söfnum við fyrir endurbótum og viðgerðum á félagsaðstöðu Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu. Það ólán varð að vatn lak inn með gluggum þannig að skemmdir urðu á gólfdúk og veggklæðningu. Því þarf félagið að ráðast í endurbætur svo hægt sé að starta félagsstarfinu sem fyrst aftur. Margir sem sækja félagsstarfið og súpu og samveru fara fátt annað og er því félagsheimilið mikilvægt fólki sem gæti annars einangrast. Þá er útleiga á salnum tekjulind félagsins. Enn er opið fyrir skráningar vilji fólk hlaupa til styrktar Sjálfsbjörg. Við hvetjum fólk til að heita á hlauparana en fjögur eru skráð í hlaupið! www.hlaupastyrkur.is velur S og Sjálfsbjörg og þá koma upp hlauparar, velur þann sem þú vilt heita á og skellir á hann hvatningu. Stuðningur við Sjálfsbjörg skiptir máli – við stöndum vörð um aðgengi að samfélaginu, endurhæfingu og hjálpartæki!