Bætt aðgengi að Flugrútunni

Sjálfsbjörg og ÖBÍ hafa átt samtal við Icelandia um aðgengi fólks sem notar hjólastóla að Flugrútunni og komið á framfæri atriðum sem mikilvægt væri að bæta.

Vel var tekið í ábendingarnar og hefur Icelandia nú þegar gert breytingar á þjónustunni.

Meðal breytinga er að:
• bókunarfrestur hefur verið styttur í 48 klukkustundir
• bætt hefur verið við stoppum í Hamraborg, Garðabæ og Hafnarfirði
• staðfest hefur verið að í rútunum sé bæði festing fyrir hjólastól og öryggisbelti fyrir farþega

Þurfi að bóka með skemmri fyrirvara en 48 klukkustundum er hægt að hafa samband við þjónustuborð Icelandia og kanna möguleika á bókun.

Nánari upplýsingar og bókun:
https://www.icelandia.com/wheelchair-accessible-flybus

Deila:

Fleiri fréttir