Könnun um komugjöld í sjúkra-, iðju- og talþjálfun

Hvernig munu komugjöld hafa áhrif á þig?

Sjálfsbjörg óskar eftir upplýsingum frá félagsfólki um hvort og eða hve oft fólk noti sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og talþjálfun.

Markmið könnunarinnar er að fá betri yfirsýn yfir það hversu mikið félagsfólk nýtir sér þessa þjónustu og hvaða áhrif komugjöld geta haft á aðgengi að nauðsynlegri þjálfun.

Niðurstöðurnar verða nýttar í hagsmunabaráttu Sjálfsbjargar um aðgengi að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu.

Við hvetjum félagsfólk sem nýtir sér sjúkra-, iðju- eða talþjálfun til að taka þátt.

👉  Taktu þátt í könnuninni hér:
Könnun vegna komugjalda til sjúkraþjálfa, talþjálfa og iðjuþjálfa

Könnunin tekur mjög stutta stund.
Hvert svar skiptir máli. Takk fyrir þátttökuna!

Deila:

Fleiri fréttir