Þriðja Aðgengisstrollið verður 8. september nk. við þingsetningu Alþingis og komið saman á Austurvelli kl. 12:45. Sjö aðilar/félög standa að Aðgengisstrollinu en öll sem láta sig varða aðgengi að samfélagi eru velkomin. Sjálfsbjörg hvetur fólk til að mæta með göngugrindina, í hjólastólnum, með stafinn, á rafskutlunni eða með önnur hjálpartæki og minna á að nú þegar samningur SÞ um réttindi fatlaðs fólks er lögfestur þarf að innleiða greinar hans í lög. Framkvæmd þarf að fylgja lögfestingu. Við getum þakkað fyrir lögfestingu SRFF, en eins og góður maður sagði ,,Takk, og hvað svo?‘‘.
Breyting varð á aðgengi fólks að sjúkra-, tal-, og iðjuþjálfun þann 1. september þegar heilbrigðisráðherra setti komugjöld á og nú þurfa öryrkjar að greiða 500 kr. fyrir skiptið, eldri borgarar 1.000 kr. og almennir 1.500 kr. Ekkert greiðsluþak er á komugjöldum. Þetta hefur þau augljósu áhrif að fólk minnkar eða hættir að sækja þessa nauðsynlegu þjónustu. Því þó upphæðin sé lág að mati margra, þá getur hún verið of há fyrir þann hóp sem býr við lægstu framfærsluna. Bent hefur verið á að þessi gjaldtaka geti verið hæpin sparnaðarleið þar sem áhrifin geta verið þau að fólk hættir að sækja t.d. sjúkraþjálfun sem verður til þess að það kemur síðar inn í heilbrigðiskerfið og er þá jafnvel orðið alvarlega veikt.
Sjálfsbjörg hefur frá stofnun félagsins beitt sér fyrir aðgengi að manngerðu umhverfi. Félagið hefur eins og annað þróast og breyst á þeim 67 árum sem það hefur verið til og í dag beitir félagið sér fyrir aðgengi að samfélaginu í heild.
Við þurfum aðgengi að störfum aðgengi að húsnæði, aðgengi að hjálpartækjum, aðgengi að veitingahúsum, baðlónum, náttúruperlum, aðgengi að heilbrigðisþjónustu, endurhæfingu og öllu því sem fólk almennt á aðgengi að. Mætum öll á Austurvöll!
CP félagið, Gigtarfélag Íslands, MND á Íslandi, MS félag Íslands, NPA miðstöðin, SEM samtök endurhæfðra mænuskaddaðra og Sjálfsbjörg landssamband hreyfihamlaðra.
