Allir með leikarnir í Laugardalshöll á laugardaginn!

Laugardaginn 31. október fara Allir með leikarnir fram í Laugardalshöllinni kl. 10:00–14:00. Um er að ræða skemmtilega íþróttahátíð þar sem gestum gefst tækifæri til að prófa fjölbreyttar íþróttagreinar og njóta saman góðrar skemmtunar.

Hrekkjavökuþema verður á hátíðinni og eru allir hvattir til að mæta í búningum! Sóli og Sóla mæta á svæðið, landsliðsfólk heilsar upp á gesti og DJ heldur uppi fjörinu. Þá verður einnig boðið upp á pizzaveislu.

Þátttökugjald er 1.500 krónur og fer skráning fram á Abler.

Komdu og taktu þátt í skemmtilegri íþróttahátíð þar sem allir geta verið með!

Deila:

Fleiri fréttir