The Icelandic Association of the Disabled's Self-Help Fund

The Icelandic Association of the Disabled's Self-Help Fund

Skilafrestur umsókna er til 1. apríl ár hvert

Vinsamlegast skilið umsókninni með tölvupósti á netfangið: hjalparlidasjodur@sjalfsbjorg.is

Hjálparliðasjóður Sjálfsbjargar landssambands hreyfihamlaðra, var stofnaður árið 1997 með það að markmiði að auðvelda hreyfihömluðum að ferðast. Markmið sjóðsins er að gera hreyfihömluðum Sjálfsbjargarfélögum kleift að ferðast innanlands og utan á jafnréttisgrundvelli. Sjóðurinn veitir umsækjendum styrk vegna hjálparliða (aðstoðarfólks) á ferðalögum.

Skilafrestur umsókna í sjóðinn er til 1. apríl ár hvert og veitt úr sjóðnum einu sinni á ári ef fjármagn leyfir.

Berist umsókn á árinu bíður hún til fyrrnefnds tíma. Niðurstaða stjórnar sjóðsins um úthlutun verður tilkynnt styrkþegum með tölvupósti eigi síðar en 7 vikum eftir að umsóknarfrestur rennur út.

Vinsamlegast skilið umsókninni með tölvupósti text-decoration-color: #1D7488;
text-underline-offset: 4px;(ef þess er nokkur kostur) á netfangið: hjalparlidasjodur@sjalfsbjorg.is 

Sumarið 2005 fór Kjartan Jakob Hauksson í hringferð í kringum landið á árabát og safnaði hann áheitum sem síðan runnu í Hjálparliðasjóð Sjálfsbjargar. Sjóðurinn var á þessum tímapunkti orðinn ansi lítill og rétti hann verulega vel úr kútnum við þetta.

Þá hljóp Björgvin Ingi Ólafsson í Reykjavíkurmaraþoninu 2016 í nafni sjóðsins og skilaði það sjóðanum kr. 356.899.– og hljóp hann einnig 2017 og 2018.