Innsetning í borgarrými
Á vordögum fékk Sjálfsbjörg lsh. erindi frá Snorra Frey Vignissyni arkitekt og Ævari Uggasyni myndlistarmanni og sviðsmyndahönnuði. Óskuðu þeir eftir leyfi til að setja niður verk sitt í sumar við Sjálfsbjargarhúsið. Þeir eru þátttakendur í verkefninu Torg í biðstöðu, sem hefur það að markmiði að lífga upp á vannýtt borgarrými með tímabundnum innsetningum. Verkið sem þeir hönnuðu var sérstaklega hugsað fyrir torgið við Sjálfsbjargarhúsið. Verkið sameinar skúlptúr og dvalarsvæði og leitast við að vekja forvitni með einfaldri en óvæntri mynd. Í tjörninni mætast maður og svanur á óvæntan hátt og bjóða hverjum og einum að skapa sína eigin túlkun. Nú er verkið að verða tilbúið, bekkur til að njóta verksins er hluti verksins og ekki annað að sjá og heyra en fólki líki vel.

Snorri Freyr Vignisson við innsetninguna Í samtali við svan.