Vitundarvakning um aðgengi
Við þingsetningu Alþingis í gær mætti hópur Aðgengisstrollara á Austurvöll með vitundarvakningu undir heitinu TAKK og hvað svo? Tilgangurinn var að þakka þingheimi fyrir lögfestingu samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólk og minna á að slíkri lagasetningu fylgir sú mikla ábyrgð að innleiða greinar samningsins í íslensk lög. Um leið vildum við hvetja þingmenn til að vinna með okkur að því að gera samfélagið aðgengilegt öllum og þar er átt við aðgengi að húsnæði, að námi, að heilbrigðiskerfinu, að hjálpartækjum að störfum, ferðalögum, samgöngum. Bara aðgengi að lífinu eins og flest önnur eiga og hafa svo sjálfsagðan rétt til. Veðrið var eins og best er á kosið og fékk vitundarvakningin óskipta athygli þings og forseta auk fjölmiðlanna Vísis og Rúv sem tóku viðtöl við hópinn. Að Strollinu standa: CP félagið, Gigtarfélag Íslands, MND á Íslandi, MS-félag Íslands, NPA miðstöðin, SEM Samtök Endurhæfðra Mænuskaddaðra og Sjálfsbjörg lsh. Meðfylgjandi myndir tók Steina Matt. ljósmyndari fyrir Sjálfsbjörg lsh