Hjálparsjóður Sjálfsbjargar á Akureyri

Hjálparsjóðurinn er á vegum Sjálfsbjargar á Akureyri og nágrenni. Styrkþegar skulu vera félagsmenn þar og hafa greitt félagsgjöld til félagsins. 

Sjóðurinn veitir styrki til:

  • háskólanáms.
  • aðlögunar á umhverfi og tækjakaupa vegna atvinnu, náms , tómstunda eða til boðskipta.
  • ferðalaga innanlands eða erlendis vegna aukakostnaðar
  • annarra þeirra verkefna sem stjórn sjóðsins metur hæf svo sem til nýsköpunar-og  sprotaverkefna.

 

Umsóknum skal skilað til stjórnar sjóðsins á þar til gerðum eyðublöðum.  Öllum umsóknum skal svarað skriflega.  Úthlutun fer fram á degi fatlaðra þann 03. desember ár hvert.

Umsókn til Hjálparsjóðsins