Hjálparliðasjóður Sjálfsbjargar

Hjálparliðasjóður Sjálfsbjargar landssambands hreyfihamlaðra, var stofnaður árið 1997 með það að markmiði að auðvelda hreyfihömluðum að ferðast. Markmið sjóðsins er að gera hreyfihömluðum Sjálfsbjargarfélögum kleift að ferðast innanlands og utan á jafnréttisgrundvelli. Sjóðurinn veitir umsækjendum styrk vegna hjálparliða (aðstoðarfólks) á ferðalögum.

Skilafrestur umsókna í sjóðinn er til 1. apríl ár hvert og veitt úr sjóðnum einu sinni á ári ef fjármagn leyfir.

Berist umsókn á árinu bíður hún til fyrrnefnds tíma. Niðurstaða stjórnar sjóðsins um úthlutun verður tilkynnt styrkþegum með tölvupósti eigi síðar en 7 vikum eftir að umsóknarfrestur rennur út.

Umsóknum er skilað inn rafrænt hér á vef Sjálfsbjargar:

Umsókn til Hjálparliðasjóðsins

Reglur um hjálparliðasjóð Sjálfsbjargar finnur þú hér

 

Sumarið 2005 fór Kjartan Jakob Hauksson í hringferð í kringum landið á árabát og safnaði hann áheitum sem síðan runnu í Hjálparliðasjóð Sjálfsbjargar. Sjóðurinn var á þessum tímapunkti orðinn ansi lítill og rétti hann verulega vel úr kútnum við þetta.

Þá hljóp Björgvin Ingi Ólafsson í Reykjavíkurmaraþoninu 2016 í nafni sjóðsins og skilaði það sjóðanum kr. 356.899.– og hljóp hann einnig 2017 og 2018.