Exoquad hjól í sumar

Sjálfsbjörg lsh. hefur Exoquad hjól til útleigu. Félagsmenn Sjálfsbjargar hafa forgang og fá hjólið á lægra verði en aðrir. Nú bjóðum við einnig Cargo kerru undir hjólið þannig að auðvelt er að flytja hjólið með sér hafi fólk krók á bílnum. Við hvetjum okkar félagsfólk um allt land til að tryggja sér hjólið til leigu í sumar, það er ekkert betra en að komast út í náttúruna. Hafið samband við HTL hjálpartækjaleigu á htl.is eða hringið í síma 518 6000 og fáið frekari upplýsingar þar.

Fleiri fréttir