Hvernig er aðgengi að hjálpartækjum á Íslandi?


Sjálfsbjörg óskar eftir þátttöku félagsfólks í stuttri könnun um hjálpartæki og aðgengi að þeim á Íslandi.
Hjálpartæki skipta sköpum fyrir sjálfstæði, virkni og þátttöku fatlaðs fólks í samfélaginu. Því er mikilvægt að Sjálfsbjörg hafi skýra mynd af reynslu félagsfólks – hvað gengur vel, hvað má betur fara og hvaða breytingar fólk vill sjá

Við viljum meðal annars vita:

• Hvaða hjálpartæki félagsfólk notar.
• Hvaðan eða frá hverjum hjálpartækin eru fengin.
• Hvernig fólk upplifir aðgengi að hjálpartækjum.
• Hvort fólk hafi þurft að bíða lengi eftir hjálpartæki eða viðgerð.
• Hvaða breytingar félagsfólk vill helst sjá.


Niðurstöðurnar verða nýttar í hagsmunabaráttu Sjálfsbjargar og í samtali við stjórnvöld um úrbætur í hjálpartækjamálum.


Könnunin tekur aðeins nokkrar mínútur og er mikilvægur þáttur í því að koma reynslu og sjónarmiðum félagsfólks á framfæri.


👉 Taktu þátt í könnuninni hér:
Könnun um hjálpartæki og aðgengi að þeim

Við hvetjum félagsfólk eindregið til að taka þátt. Hvert svar skiptir máli!


Kærar þakkir fyrir þátttökuna.

Deila:

Fleiri fréttir