Sundlaug Sjálfsbjargar í Hátúni 12 er opin fyrir almenning
á mánudögum og fimmtudögum frá klukkan 8:30 – 11:30.
Aðgangskort fæst hjá okkur og kostar kr. 15.000.- Kortið gildir í sex mánuði. Árið skiptist í tvö tímabil janúar til júlí og ágúst til ársloka. Íbúum í Hátúni 10, 12 og félagsmönnum Sjálfsbjargar lsh býðst 15% afsláttur.
Sundlaugin er leigð út til námskeiðahalds og annarra viðburða.
Allar frekari upplýsingar gefur Hlín Íris Arnþórsdóttir umsjónarkona sundlaugar, í síma 692-1957 eða í tölvupóstfanginu hlin@sjalfsbjorg.is