Bætt aðgengi – betri upplifun. Viðburður.

Ferðamálastofa býður ferðaþjónustuaðilum og öðrum hagaðilum til viðburðar í tilefni af Global Accessibility Awareness Day, fimmtudaginn 21. maí n.k. frá kl. 10:00 – 11:00.

Viðburðurinn fer fram á Teams og verður í beinu streymi en nauðsynlegt að skrá sig.

Á viðburðinum fá þátttakendur innsýn í aðgengismál frá tveimur ólíkum en afar mikilvægum sjónarhornum — annars vegar frá notandanum sjálfum og hins vegar frá ferðaþjónustuaðila.

Aðalfyrirlesari er Shane Hryhorec, áhrifavaldur. Auk þess verður erindi frá Vilborgu Ástu Árnadóttur, markaðs- og upplifurnarstjóra hjá Sky Lagoon.

Viðburðurinn er hluti af átaki Ferðamálastofu til að hvetja fyrirtæki til að huga að góðu aðgengi í íslenskri ferðaþjónustu. Með okkur í samstarfi eru lykilaðilar á sviðinu; Sjálfsbjörg, ÖBÍ og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Markmið viðburðarins er að veita innsýn, kveikja umræðu og styðja ferðaþjónustuaðila í að taka raunhæf skref í átt að bættu aðgengi.

Við hvetjum alla sem starfa í ferðaþjónustu – eða hafa áhuga á að bæta aðgengi fyrir alla – til að skrá sig á viðburðinn.

Tekið af heimasíðu Ferðamálastofu. https://www.ferdamalastofa.is/is/um-ferdamalastofu/frettir/baett-adgengi-betri-upplifun-global-accessibility-awareness-day

More news