National Convention of Sjálfsbjörg

Landsfundur Sjálfsbjargar var haldinn 24. og 25. apríl. Hann var með breyttu sniði að þessu sinni þar sem fyrri dagurinn var vinnufundardagur Sjálfsbjargar. Þar var fyrirlestur um Eflingu félagsandans í umsjá Proevents. Halaleikhópurinn kom og kynnti leikrit sem hópurinn samdi og sýndi í framhaldinu. Frístundasafnið var kynnt og að lokum var fyrirlestur um Hugarfar og samskipti til umbreytinga. Á seinni degi voru aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins. Á fundinum var borin upp og samþykkt lagabreytingartillaga um Beina aðild að Sjálfsbjörg lsh. þar sem lagt var til að félagsaðild yrði tvíþætt:
• Aðild í gegnum svæðisbundin aðildarfélög eins lögin kváðu á um, og
• Bein einstaklingsaðild að Sjálfsbjörg í gegnum deild beinna félagsmanna óháð aðildarfélögunum
Markmiðið er að bæta við nýrri leið til þátttöku í starfi Sjálfsbjargar án þess að draga úr hlutverki aðildarfélaga. Fleirum verði gert kleift að taka þátt í starfi landssambandsins, m.a. einstaklingum á svæðum þar sem erfitt er að halda úti sjálfstæðu félagi.

Deild beinnar einstaklingsaðildar
Lagt var til að einstaklingsaðild yrði skipulögð innan Sjálfsbjargar í sérstakri einingu, deild einstaklinga – beinna félagsmanna, án þess að um sjálfstætt félag eða lögaðila sé að ræða.
Deildin hefði hvorki eigin stjórn né fjárhag. Skrifstofa Sjálfsbjargar myndi annast umsýslu deildarinnar, þ.á m. skráningu félagsmanna og boðun funda. Deildinni yrði gefið sérstakt nafn í lögum Sjálfsbjargar.
Halda yrði að lágmarki einn árlegan fund beinna félagsmanna, sem gæti verið rafrænn. Á fundinum myndu félagsmenn:
• kjósa landsfundarfulltrúa úr sínum hópi
• kjósa talsmann deildarinnar til setu á formannafundum Sjálfsbjargar.
Einstaklingsfélagar myndu jafnframt hafa kjörgengi í trúnaðarstörf Sjálfsbjargar með sama hætti og félagsfólk aðildarfélaganna. Lesa má meira um einstaklingsaðildina í 6. gr. laganna. Ýmsar breytingar hafði þurft að gera á lögunum til að aðlaga þau að hinni nýju grein. Farið var með breytingarnar sem eina lagabreytingartillögu varðandi beina aðild sem var samþykkt með meirihluta atkvæða en tveir sátu hjá.

Eftir kosningu í stjórn sat sama stjórnarfólk áfram. Ályktun landsfundar Sjálfsbjargar 2026 var um aðgengismál og var hún samþykkt einróma.

Góður andi var á fundinum sem hófst kl. 9:30 og var slitið kl. 15.07.

More news